Glúmur Baldvinsson, oddviti Frjálslynda lýðræðisflokksins, er býsna virkur á Facebook þar sem hann segir sínar skoðanir umbúðalaust.
Glúmur deildi í gærkvöldi umfjöllun um viðtal Snorra Björnssonar við Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra. Ásgeir hefur vakið athygli undanfarna mánuði fyrir að tala tæpitungulaust um að Íslandi sé að miklu leyti stjórnað af sérhagsmunahópum.
Í viðtalinu við Snorra fer Ásgeir um víðan völl og talar meðal annars um stýrivexti og fasteignamarkaðinn svo fátt eitt sé nefnt. Þá kom hann með ráðleggingu til landsmanna um að festa vexti sem vakið hefur töluverða athygli.
„Þú getur fest vexti og það hefur komið mér á óvart af hverju það eru ekki fleiri sem hafa fest vexti,“ sagði hann og bætti við að ef hann ætti að gefa fólki ráð væri það að festa vexti. „Ég veit ekki nákvæmlega hvað er að fara að gerast í kerfinu, það er svo margt sem getur gerst. En ég náttúrulega veit að við hljótum að fara að hækka vextina því vextirnir voru voðalega lágir út af þessum faraldri.“
Glúmur – eins og raunar fleiri – er ánægður með Ásgeir og segir að hann sé eini embættismaðurinn sem hann myndi aldrei reka tæki hann við völdum hér á landi.
„Þegar faðir minn var að brjótast til valda uppúr miðjum níunda áratug síðustu aldar gaf hann nokkur loforð. Eitt þeirra var að reka umsvifalaust Jóhannes Nordal seðlabankastjóra og alla hans blýantsnagara. Ekki stóð hann við það. Mitt loforð er að reka aldrei Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra þegar ég tek völdin. Og öfugt við föður minn ætla ég að standa við það loforð. Read my lips. Ég mun hins vegar reka alla hina.“