„Foreldrar víða um lönd hafa áhyggjur af því sem börnum þeirra er kennt í skólum nú til dags. Það er ekki alltaf að ástæðulausu. Sums staðar hefur pólitískur áróður kennaranna tekið við af fræðslu,“ segir Sigmundur í upphafi færslu sinnar á Facebook í kvöld en þar ljóstrar hann því upp að andlit hans hafi verið birt til hliðar við Adolf Hitler og Benító Mússólíní í kennslustund Verzlunarskólans.
Sigmundur Davíð segir í færslunni að huga megi að þeirri þróun hér á landi að pólitískur áróður sé í meira mæli að færast inn í kennslustofur landsins.
Á myndinni sem fylgir færslu Sigmundar Davíðs má sjá fyrirsögnina „Nokkrir merkir þjóðernissinnar“ og eru þar einræðisherrarnir fyrst birtir og svo Sigmundur Davíð látinn fylgja með.
Sigmundur telur að margt megi athuga við bæði myndirnar og fyrirsögnina en hann telur að hvorki Hitler né Mússólíni hafi gert nokkuð sem talist gæti til þess að vera „merkir“ einstaklingar.
Hann telur að mestu mætti flokka þá sem markverða „en engu að síður ómerkilega, enda stjórnarfar þeirra einhvert óhugnanlegasta dæmi um öfgar í mannkynssögunni (ásamt nokkrum leiðtogum kommúnistastjórna),“ segir hann.
Kennarinn sem birti umrædda mynd er ekki nafngreindur í færslu Sigmundar Davíðs en hann telur þó að sér vegið með athæfinu og kallar það óþverrabragð.
„Ég veit ekki hvort óþverrabragð kennarans við Verzlunarskólann stafar eingöngu af löngun til að afvegaleiða nemendur pólitískt eða hvort hann var sjálfur afvegaleiddur á yngri árum og veit bara ekki betur,“ segir Sigmundur Davíð.
Færslu Sigmundar Davíðs má sjá í heild sinni hér fyrir neðan.