Einari Bárðar ekki skemmt: „Skelfileg uppgjöf“

Einari Bárðar­syni, um­boðs­manni, al­manna­tengli og laga­höfundi, er ekki skemmt yfir því að Euro­vision-söngva­keppnin hafi verið blásin út. Þetta var til­kynnt í gær og er ó­hætt að segja að Euro­vision-að­dá­endur um allan heim séu í sárum.

Einar, sem samdi meðal annars lagið Birta sem keppti fyrir Ís­lands hönd, er með lausn á vanda­málinu. Hann hvetur til þess að keppnin fari fram en þó í tölu­vert breyttri mynd.

„Þetta er alveg skelfi­leg upp­gjöf og aug­ljós for­ystu­vöntun. Þetta er laga­keppni fyrst og síðast. Ljósa­sjó­við getur beðið milli ára - en lögin liggja fyrir og Evrópa getur kosið mjög hæg­lega. Á tímum eins og þessu er Euro­vision enn meira á­ríðandi til að þjappa saman manns­andanum og bar­áttu­gleðinni,“ segir Einar á Face­book undir þræði fjöl­miðla­mannsins Reynis Trausta­sonar.

Reynir er sjálfur þeirrar skoðunar að keppnin geti vel farið fram án þess að vera með beina út­sendingu. „Fólk kýs ein­fald­lega um mynd­böndin. Það er fínt sjón­varp.“

Al­dís Haf­steins­dóttir, bæjar­stjóri í Hvera­gerði, tekur undir með Reyni og Einari. „Ná­kvæm­lega og myndi gleðja íbúa þver­s og kruss um álfuna!“