Einar vaknaði í Köben árið 2001 og allt breyttist: „Stoltur af mínum viðbrögðum þennan morgun“

Einar Bárðarson, lagahöfundur, umboðsmaður og þúsundþjalasmiður, hefur tamið sér það góða lífsviðhorf að fara með gleði og bjartsýni inn í þau verkefni sem hann tekur sér fyrir hendur. Þetta vita þeir sem hafa fylgst með Einari á undanförnum árum.

Hann rifjaði upp á Facebook-síðu sinni á dögunum þegar hann ákvað að breyta lífsviðhorfi sínu til frambúðar. Hann vaknaði í Kaupmannahöfn sunnudaginn 13. maí árið 2001, en kvöldið áður hafði lag hans, Angel í flutningi Two Tricky, beðið afhroð í úrslitum Eurovision. Lagið fékk aðeins þrjú stig á úrslitakvöldinu og endaði í næst neðsta sæti.

Kom bara eitt til greina

„Hafandi séð og lesið margar útskýringar á misjöfnu gengi okkur í gegnum árin í þessari keppni fannst mér ekkert koma til greina nema eitt. Enda í sjálfu sér það eina í stöðunni við þessar aðstæður. Ég sem höfundur lagsins, verkstjóri ferðarinnar og stjórnandi geggst að fullu við ábyrgð á þessu,“ segir Einar og heldur áfram:

„Engar kenningar um samsæri um kosningasvindl eða hvar við vorum í röðinni eða veður eða hvað annað var um að kenna. Ég hafði valið gott fólk í allar stöður sem allt vann sitt verk óaðfinnanlega. Söngur, framkoma, fatnaður, hljóð og enskur texti var allt unnið uppá 10 og við engan að sakast þar.“

Einar segist hafa stigið fram og sagt eins og var að allir hefðu gert sitt besta, kenndi engum um og tók ábyrgð á gengi lagsins. Evrópa hefði einfaldlega ekki verið tilbúin að veita laginu brautargengi.

Lagið sem ég vann undir þessa keppni og fékk umboð keppninnar heima til að fara með átti ekki sjens. Það er gott lag og bullandi singalong og stemmning en ekki nógu gott í þessa keppni. Af hverju að rifja þetta upp? Kannski helst vegna þess að það er áhugavert en ekki skemmtilegt verkefni að vera flengdur á beran rassinn fyrir framan alla Evrópu,“ segir Einar og bætir við að viðbrögðin geti í raun bara verið tvenns konar.

„Það hefði verið hægt að fara í fýlu og teygja sig í allar afsakanirnar í bókinni og kenna öllu og öllum um nema sjálfum sér. Eða hitt að stíga upp í leiðtogaverkefnið sem þjóðin kaus mann til og taka ábyrgð og gangast við hlutunum af auðmýkt. Setjast niður og læra af þessu, standa svo upp og halda áfram, líta aldrei til baka. Fara með sömu gleði og bjartsýni inn í næsta verkefni en með þessa dýrmætu reynslu með sér.“

Leyfði því ekki að gerast

„Ég er stoltur af mínum viðbrögðum og ákvörðunum þennan morgun. Þau hafa verið mér leiðarljós síðan. Það hefði verið auðvelt að láta þetta sitja á sálinni og leyfa þessu dæma mig til allrar framtíðar en því leyfði ég ekki að gerast. Það hefði líka geta haft áhrif á aðra sem að ferðinni komu og það kom ekki til greina.“

Einar segir að eftir þetta hafi hann alltaf haft orð Rocky Balboa að leiðarljósi. Lífið snúist ekki um það hversu oft maður er sleginn niður, heldur hversu oft maður stendur upp aftur. Við þetta megi bæta að sá sem aldrei stígur inn í hringinn er heldur aldrei sleginn niður.

„Við ykkur öll sem voruð með mér á Parken þess viku segi ég: Ég er geggjað stoltur af ykkur og þakklátur. Mörg ykkar hafið farið aftur og uppskorið meira. Ég hefði ekki geta verið umvafinn betra og skemmtilegra fólki - einhverjir fundu ástina og eiga hana enn.

Heima fæddist vinum okkar dóttir sem sem skýrð var í höfuðið á laginu, þetta eru dýrmætar minningar og til hamingju með 20 ára afmæli þessar merkilegu ferðar.

Nú 20 árum síðar eiga Daði og Gagnamagnið sviðið. Við því er bara eitt að segja ÁFRAM ÍSLAND.“