Einar: Út­lit fyrir góðan janúar­mánuð – Kalt en snjó­laust að mestu sunnan heiða

Einar Svein­björns­son, veður­fræðingur sem heldur úti vefnum Blika.is, segir að út­lit sé fyrir að komandi janúar­mánuður verði heldur tíðinda­minni en janúar á árinu sem er að líða – að minnsta kosti veður­fars­lega.

Einar hefur farið yfir spá­kortin og birti hann janúar­spá sína á vef Blika.is í gær. Hann bendir á að janúar­mánuður sé sá mánuður sem alla jafna býður upp á hvað breyti­legast veður. „Í ár 2020 var tíðin í janúar mjög stór­skorin með tíðum vetrar­stormum. Nú hins vegar er útit fyrir öllu ró­legra veður svona heilt yfir þar sem hæðir munu lík­lega verða ráðandi um veður­lag fremur en lægðirnar,“ segir hann.

Hann segir að á­kveðinna breytinga sé að vænta á ný­árs­dag þegar hlánar á landinu og sunnan­átt ríkjandi. Þetta veður­far verður við­varandi fram á þrettándann en þá kólnar með kulda­skilum úr vestri. Hæð tekur sér ból­festu yfir Græn­landi og gæti gert nokkuð kast þessa daga.

Dagana 11. til 17. janúar er út­lit fyrir ríkjandi norðan­átt með köldu veðri. Til marks um það verður hitinn að líkindum tveimur til sex stigum undir meðal­lagi og verður élja­gangur á­berandi norðan- og norð­austan­til en lengst af alveg þurrt sunnan­til.

Seinni hluta janúar­mánaðar segir Einar að lík­lega verði enn hæð yfir Græn­landi, hiti á­fram undir meðal­lagi en enn sér­lega þurrt og að mestu snjó­laust um sunnan­vert landið.

Spá Einars má lesa í heild sinni hér.