Einar Þorsteinsson hættir hjá RÚV

Einar Þorsteinsson, fréttamaður á RÚV til margra ára og einn af stjórnendum Kastljóss, hefur sagt upp störfum og lætur hann af störfum í dag. Kjarninn greinir frá þessu og vísar í skilaboð sem Einar sendi til samstarfsmanna sinna á RÚV fyrr í dag.

Einar hefur verið áberandi í fréttum og fréttatengdum þáttum á RÚV á undanförnum árum og vakið athygli fyrir beinskeytt viðtöl.

Í skilaboðunum, sem Kjarninn vísar í, segist Einar hafa ákveðið að þiggja starf sem honum bauðst fyrir skömmu.

„Þetta er erfið ákvörðun því frétta­stofan er mitt annað heim­ili og það er erfitt að kveðja ykkur vini mína. Ég get því miður ekki sagt ykkur strax frá því hvert ég er að fara en það skýrist fljót­lega. En ég hætti sem sagt í dag,“ er haft eftir Einari.

Frétt Kjarnans.