Einar: „Það er viðbúið að ég verði litinn hornauga af kollegum mínum“

„Það er viðbúið að ég verði litinn hornauga af kollegum mínum en á móti held ég að margir þeirra vildu vera í mínum sporum. Ég er að spara milljarða fyrir fólkið í landinu.“

Þetta segir Einar G. Harðarson, fasteignasali hjá Kaupstað, en fasteignasalan tók í gær það skref að bjóða upp á rafræn viðskipti. Einar segir í samtali við Fréttablaðið í dag að margir hafi unnið að breytingunni í heilt ár og um sé að ræða byltingu fyrir neytendur. Möguleiki sé á að fólk geti lækkað kostnað vegna fasteignaviðskipta um milljónir króna.

Einar segir að með rafrænum lausnum sparast mikill tími og kostnaður, til að mynda við gagnaöflun og þinglýsingar. Þannig falli prósentutengt umsýslugjald út og í nýja kerfinu greiði kúnni aðeins grunngjald. Dæmi um breytinguna er sala á til dæmis 100 milljóna króna eign og gæti kostnaður við slíkt numið undir 200 þúsund krónum í stað 2,5 milljóna króna.

Fréttablaðið ræðir einnig við Breka Karlsson, formann Neytendasamtakanna, sem fagnar aukinni samkeppni.

„Við höfum séð tölvupóstsamskipti sem sýna svart á hvítu að fasteignasalar segjast geta hækkað verð um heila milljón á kostnað kaupanda,“ segir hann.

Nánar á vef Fréttablaðsins en þar er einnig rætt við Guðbjörgu Sveinbjörnsdóttur hjá fasteignasölunni Trausta um málið.