Einar telur sig hafa leyst gátuna um mistrið

Ó­út­skýrt mistur hefur verið yfir höfuð­borgnni og víða um land í vikunni sem hvorki verður rakið til eld­gossins í Geldinga­dölum né foks frá söndum hér á landi eða svif­ryks.

Frétta­blaðiðbirti hins vegar ný­verið færslu Einars Svein­björns­sonar, veður­fræðings í dag þar em hann telur sig hafa leyst gátuna.

Upp­haf­lega taldi hann mistrið vera gamall reykur eða iðnaðar­mistur komið austan úr álfum. Snemma á sunnu­dag rigndi á­gæt­lega með bakka sem gekk norður yfir vestan­vert. Við það hreinsaðist loftið að mestu.

„Alveg frá því að stytti upp hefur lag­skipting loftsins yfir landinu verið mjög á­berandi, ekki síst suð­vestan­lands þar sem við fáum há­lofta­mælingar á 6 klst fresti. Frá því á há­degi á sunnu­dag hefur verið á­berandi hita­hvarf í 700-1.500 m hæð lengst af,“ skrifar Einar í færslu sinni. ð.

Þá er jafn­framt hægur vindur af breyti­legri átt. Gos­móðan hefur risið upp undir hita­hvörfin og borist í ýmsar áttir þessa daga og svælist aftur til jarðar að sögn Einars.

„Ekkert hefur rignt og gos­móðan hefur því borist fram og til baka eftir því hvernig blæs og í raun safnast upp í neðsta loft­laginu og valdið þessu blá­hvíta mistrinu sem dregur veru­lega úr skyggni,“ segir Einar.

„Hér og þar hefur brenni­steins­tvíoxíðið sem komið er í gosinu mælst mark­vert en ekki þó ekki lengi á hverjum stað. Einn skýrast í Hval­firði síð­degis í gær fimmtu­dag.

Jóhann Ingi Sig­tryggs­son flug­maður í innan­lands­flugi Icela­landair sendi mér á­huga­verðar myndir sem teknar voru síð­degis á mið­viku­dag (28. apríl). Sú sem hér sést er með sýn til suð­austurs þar sem glittir í Þing­valla­vatn fyrir miðri mynd. Hún er tekin í 8000 fetum eða í um 2.500 m hæð. Skilin sjást vel og Jóhann sagði að þau hefðu verið mjög glögg þ.e. við hita­hvarfið sem líka má kalla lok.“

Einar segir að lokum að ofan þessara skila hefði verið eins tært og það best getur orðið.

„Nú er bar að bíða eftir næstu rigningu, nú eða að sterkari vindar blási gos­móðunni á haf út,“ segir Einar að lokum