Einar: Svona verður veðrið í september – Gætum átt von á góðu

Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Blika.is, hefur dregið saman nýja langtímaspá frá Evrópsku reiknimiðstöðinni í fróðlega samantekt á vef sínum.

Til að gera langa sögu stutta má vænta þess að fyrri hluti septembermánaðar verði hægviðrasamur, mildur og þurr. Veðrið það sem af er sumri hefur ekki verið upp á marga fiska víðast hvar á landinu en eftir rigningar sunnanlands nú í lok mánaðar og skammvinna norðanátt í vikulokin segir Einar útlit fyrir að háþrýstisvæði verði allsráðandi við landið til 10. – 11. september.

Einar segir að í næstu viku, 4-11. september, séu yfirgnæfandi líkur á hæðarhrygg hér í háloftunum við landið.  „Að sama skapi hár loftþrýstingur yfir landinu og með því þurrviðri og sólríkir dagar. Ágætur hiti því að deginum, en næturkuldi ef saman fer heiðríkja og hægur vindur,“ segir hann.

Spárnar fyrir vikuna 12. til 18. september eru óljósari en Einar segir meira en 50% líkur á að áframhald verði á hæðarhrygg við landið.

„Um 20% líkur á að lægðir með úrkomu nái aftur til landsins og 10-15% líkur á að snúist til N-áttar með kólnandi veðri.“

Nánar er fjallað um málið á vef Bliku.