Einar svarar eftir um­deilt við­tal: „Ég var bara mjög kurteis og greip lítið frammí“

Einar Þor­steins­son, spyrill í Kast­ljósi, hefur verið gagn­rýndur þó nokkuð á sam­fé­lags­miðlum eftir við­tal við Má Kristjáns­son, yfir­lækni smit­sjúk­dóma­deildar Land­spítalans, í gær­kvöldi.

Um­ræðu­efni við­talsins var bráða­birgða­skýrsla Land­spítalans um hóp­smitið sem kom upp á Landa­koti í haust. Í skýrslunni var meðal annars fundið að ó­full­nægjandi búnaði, slæmri loft­ræstingu og þröngum húsa­kosti og spurði Einar meðal annars hvort þetta væru full­nægjandi skýringar.

Ráðist á starfsfólkið

Eins og Hring­braut greindi frá í gær­kvöldi gagn­rýndi Guð­mundur Gunnars­son, fyrr­verandi for­maður Raf­iðnaðar­sam­bandsins, Einar harð­lega og sagði að hann hefði oft lagst lágt í Kast­ljósi en aldrei eins og í gær­kvöldi. Þótti Einar sauma full hart að Má og sagði Guð­mundur að Einar hefði valið að ráðast á starfs­fólkið en ekki þá sem hafa farið með fjár­veitingar­vald og í­trekað frestað byggingu nýs Land­spítala.

Helga Vala Helga­dóttir, þing­maður Sam­fylkingar, lagði einnig orð í belg á Face­book-síðu sinni, en at­hygli vekur að Einar svaraði Helgu Völu og skiptust þau á nokkrum orðum undir færslu þing­konunnar.

Einar svarar fyrir sig

„Ég er bæði orð­laus og rasandi eftir á­horf á Kast­ljós rétt í þessu. Þetta var held ég nýtt met,“ sagði Helga Vala. Einar blandaði sér í um­ræðurnar í þræðinum og sagði meðal annars:

„Í þætti kvöldsins var ein­fald­lega boðið upp á spurningar um hvort að það sé rétt á­lyktun af lestri skýrslunnar að engin mis­tök hafi verið gerð í við­búnaði far­sóttar­nefndar LSH varðandi hóp­smitið á Landa­koti. At­hyglis­vert að þing­maðurinn skuli taka það svona nærri sér.“

Helga Vala svaraði að bragði og sagði að það hefði ekki verið spurningin þegar þrá­spurt var, með framí­gripum, hvers vegna ekki var gætt betur að sótt­vörnum og hvort það væri á starfs­fólk leggjandi að eiga það á hættu að smita.

„Hverju átti hann að svara? Vildi spyrillinn fá svarið: „Sjúk­lingarnir hefðu betur verið lokaðir inni án um­önnunar starfs­fólks” eða „Við hefðum betur látið starfs­fólkið dvelja á spítalanum”. Þegar skýrslan er lesin virðast ein­mitt ekki hafa verið gerð mann­leg mis­tök heldur kerfis­galli - ó­full­nægjandi hús­næði og að­stæður. Hvað eiga starfs­fólkið og yfir­menn að gera í því? Neita að mæta í vinnuna til að sinna sjúk­lingum?“

Helga Vala sagði að lík­lega þyrfti að spyrja ís­lenska kjós­endur hvers vegna þeir velja í­trekað stjórn­mála­flokka sem setja ó­full­nægjandi fjár­magn í þetta grunn­kerfi okkar. „Eða kannski spyrja fjár­mála­ráð­herra hvort hann telji þetta mögu­lega vera á á­byrgð þeirra sem skammta fjár­magni? Eigum við að prófa það Einar?“

Allt eðlilegar spurningar

Einar svaraði þessu og sagðist ekki hafa verið að biðja um nein til­tekin svör. „Þú veist betur en að vera að hjóla í spyrilinn. Þetta voru allt eðli­legar spurningar um graf­alvar­legt mál. Og ég var bara mjög kurteis og greip lítið frammí. Svo kemur Land­læknir með sína skýrslu og vonandi verður hún til gagns.“

Helga Vala sagði að spurningarnar hefðu verið þess eðlis að einungis tvö svör voru í boði. „Svipað og „ertu hættur að berja konuna þína” spurningin,“ sagði hún og benti Einari á að lesa færslu sem Gunnar Skúli Ár­manns­son, svæfinga- og gjör­gæslu­læknir, skrifaði eftir þátt gær­kvöldsins og Frétta­blaðið fjallaði meðal annars um. Í færslunni sagði Gunnar Súli að ef allt hefði verið eðli­legt á Ís­landi hefði nýr Land­spítali verið opnaður með full­komnum sótt­vörnum árið 1985.

Einar svaraði þessum orðum Helgu Völu svona: „Meira ruglið. Af hverju í ó­sköpunum má ekki spyrja um gæði þessarar skýrslu? Og hvort stjórn­endur séu að víkja sér undan á­byrgð? Hvort mis­tök hafi verið gerð? Til hvers heldurðu eigin­lega að fjöl­miðlar séu? Svo er það bara annað við­tal um fjár­svelt heil­brigðis­kerfi. Bæði Már og Páll hafa komið því sjónar­miði að. En í Kast­ljósi eiga þær spurningar betur við gagn­vart ráð­herra. Það kemur vonandi fljót­lega.“

Fjörugar um­ræður hafa farið fram um við­talið á Face­book-síðu Helgu Völu og sitt sýnist hverjum. Margir koma Einari til varnar og segja að hann hafi staðið sig vel í við­talinu. Í þeim hópi er til dæmis tón­listar­maðurinn Bubbi Morthens sem segir ein­fald­lega: „Mér fannst hann standa sig mjög vel.“