Einar segir Pírata stunda ritskoðun: Sjáðu færsluna sem mátti ekki birtast

Einar Steingrímsson segir að á Pírataspjallinu á Facebook hafi lengi verið stunduð ritskoðun þar sem reynt er að þagga niður tilteknar skoðanir og fólk sem tjáir þær. Þetta segir Einar í pistli sem birtist á vef Vísis í morgun.

Einar bendir á að framkvæmdastjórn Pírata beri ábyrgð á spjallinu og hún hafi hunsað kvartanir um meinta ritskoðun.

„Nú er auðvitað erfitt að hafa yfirsýn yfir allt sem eytt hefur verið af spjallinu, en þar sem þræðir eru gjarnan frystir án þess að vera eytt, er nokkuð augljós tilhneiging í slíkri ritskoðun, nefnilega að hún beinist fyrst og fremst gegn þeim sem voga sér að gagnrýna kennisetningar femínista. Enda hafa stjórnendur oft viðurkennt að hafa beitt slíkri ritskoðun vegna eigin skoðana eða andúðar í garð fólks sem póstar á spjallið þótt ekki hafi verið haldið fram að póstarnir sjálfir væru ámælisverðir,“ segir Einar í grein sinni.

Hann segir að meint ritskoðun hafi á köflum verið mjög slæm síðustu ár, en virtist þó eitthvað hafa lagast fyrir skemmstu þegar færslur þurftu samþykki stjórnenda áður en þær birtust. Á sama tíma segir Einar að sumir ofstækisfyllstu stjórnendurnir hafi horfið á braut.

„En sá friður entist stutt. Síðastliðinn sunnudag var innleggi sem undirritaður ætlaði að pósta hafnað,“ segir Einar en innleggið snerist um frétt Vísis þar sem gagnrýni Kristínar Ástgeirsdóttur, framkvæmdastýru Jafnréttisstofu, birtist. Um var að ræða gagnrýni á þá hugmynd Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar að leggja niður kynjafræði.

Færslan sem Einar vildi koma að á Pírataspjallinu var svona:

„Burtséð frá því hvað fólki finnst um málflutning Hannesar, af hverju er í lagi að framkvæmdastýra Jafnréttisstofu tali niðrandi um karla með þessum hætti, en allt verður brjálað ef hnýtt er í konu sem „freka kellingu“?“

Einar segir að í höfnuninni hafi verið vísað í fyrstu reglu spjallsins sem kveður á um að „hatursorðræða og persónulegar árásir“ séu óheimilar.

„Ekki var útskýrt hvernig þetta innlegg gæti flokkast sem hatursorðræða (enda hefur verið algengt í ritskoðun á spjallinu að gefnar ástæður hafi verið út í hött). Hins vegar skrifaði umræddur stjórnandi þessa skýringu: „Þetta er ekki uppbyggilegt innlegg, það er búið að prófa það. Kommentin verða mjög fljótt leiðinleg.“

Einar er ósáttur við þetta og segir í lok pistilsins að þöggunin hafi gengið svo langt að ekki er lengur hægt að ræða ritskoðun og þöggun innan hreyfingarinnar.

„Og þótt í Grunnstefnu Pírata segi „Takmörkun á frelsi fólks til að tjá sig er óásættanleg, nema til verndar borgararéttindum einstaklinga“, þá virðast sumar skoðanir vera frjálsari en aðrar á vettvangi Pírata, alveg eins og var með jafnréttið í Animal Farm ...“