Einar Þorsteinsson, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins og formaður borgarráðs, segir að það líti út fyrir að flugvöllur í Hvassahrauni sé úr myndinni.
Þetta sagði Einar í Reykjavík síðdegis en Vísir greinir frá. Einar ætlar þó að bíða eftir niðurstöðum starfshóps til að útiloka hann flugvöllinn alveg.
Samningur var gerður milli ríkis og borgar um flutning vallarins í Hvassahraun árið 2019 en málið er enn í ferli. Síðan þá hafa nokkrar jarðskjálftahrinur riðið yfir Reykjanesið og tvisvar sinnum gosið á svæðinu. Því er flugvöllur í Hvassahrauni ekki enn góður kostur.
„Starfshópurinn er enn að störfum og þó að við sjáum að við rífumst ekki við eldfjöll er rétt að bíða eftir niðurstöðum hópsins og taka svo bara upplýsta ákvörðun á grundvelli þeirra gagna sem liggja fyrir. En það er vissulega hárrétt að líkurnar á því að þarna verði flugvöllur eru mun minni en áður,“ segir Einar.
„Það er samningur um að það megi ekki skerða rekstraröryggi flugvallarins. Við vinnum þetta málefnalega á grundvelli upplýsinga og ég er bjartsýnn á að það náist niðurstaða í málið. Það er gríðarlega mikilvægt, og það vita Sjálfstæðismenn, að það þarf að hraða alla uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í höfuðborginni,“ segir Einar en borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins eru meðal þeirra sem hafa gagnrýnt uppbygginguna.
Hægt er að lesa og hlusta viðtalið við Einar hér