Þó komið sé fram í júnímánuð virðist veturinn ekki alveg vera búinn að sleppa tökunum. Þetta er að minnsta kosti raunin ef marka má spá Bliku og Veðurstofunnar fyrir helgina. Allar líkur eru á því að talsvert frost verði á Akureyri aðfaranótt sunnudags.
„Einkar erfiðum vetri lauk á vegum landsins strax eftir páska. Síðan þá hefur verið merkilega laust við nokkur hret sem orð er á gerandi. Vissulega frysti stundum, en í þurru veðri og gerði skammvinna föl á fjallvegum, en varla kuldakast að vori eins og slík eru oftast skilgreind,“ segir Einar á Facebook-síðu sinni og bætir við að við ætlum ekki alveg að sleppa þetta árið þó komið sé fram í júní.
Einar bendir á að á morgun nálgist kaldara loft úr norðri og aðfaranótt föstudags sé spáð éljum norðaustanlands. Það gæti hvítnað á vegum með hálku alveg niður undir hundrað metra hæð og jafnvel niður undir sjávarmál.
Einar birtir spákort máli sínu til stuðnings sem sýnir 10 stiga frost í 1.300 metra hæð norðaustanlands á föstudagsmorgunn. „Sæmilegasta kuldahret ef spáin gengur eftir. Enn kaldara verður aðfaranótt laugardagsins eftir að léttir til. Þá frystir allvíða frá Skagafirði og austur á land. Blika spáir þannig 3 stiga frosti á Akureyri kl. 3 laugardagsnóttina og Veðurstofan er á svipuðu róli í sinni spá.“
Veður hefur verið með ágætum á Akureyri undanfarna daga og er til dæmis bjart og milt norðan heiða í dag. Ef spár ganga eftir ættu höfuðborgarbúar að njóta sólar á morgun en samkvæmt sjálfvirkri spá Veðurstofunnar má gera ráð fyrir 15 stiga hita og glampandi sól í Reykjavík í hádeginu á morgun.
SÆMILEGASTA KULDAHRET Einkar erfiðum vetri lauk á vegum landsins strax eftir páska. Síðan þá hefur verið merkilega...
Posted by Einar Sveinbjörnsson on Miðvikudagur, 3. júní 2020