Einar ræðir það þegar hann fékk á baukinn: „Það var mjög skrýtið fyrir mig“

Einar Kárason rithöfundur er nýjasti gesturinn í hlaðvarpsþætti Sölva Tryggvasonar. Í þættinum er farið um víðan völl og meðal annars rifjað upp þegar Einar fékk yfir sig mikla gagnrýni fyrir að taka upp hanskann fyrir J.K Rowling, höfund bókanna um Harry Potter.

J.K Rowling hefur vakið reiði margra vegna ummæla sinna um trans fólk og hafa margir túlkað þau sem transfóbíu. Rowling meðal annars mótmælt kynhlutlausri orðanotkun og gagnrýnt það að trans konum sé veittur aðgangur að búningsklefum til dæmis.

Vísir birtir brot úr viðtalinu við Einar.

„Til að byrja með var útgangspunkturinn sá að konur ættu ekki að þurfa að koma inn í sturtuklefa þar sem einhver væri með slátrið milli fótanna. En svo fór hún á Twitter og sagði hluti sem ég er ekki endilega sammála. En þetta er einn af mikilvægustu rithöfundum okkar samtíma. Það eru heilu kynslóðirnar sem eru orðnar að bókafólki út af Harry Potter bókunum.“

Sem fyrr segir fékk Einar yfir sig mikla gagnrýni og greindi Hringbraut til dæmis frá því að dætur hans hefðu hvatt hann til að eyða ummælum sínum á Facebook.

„Það var mjög skrýtið fyrir mig að átta mig á því að það væri upp til hópa fólk úr mínum eigin flokki, Samfylkingunni og fólk úr rithöfundasambandinu sem var að ráðast á það sem ég sagði. Ef að eitthvað á að vera múrbrjótur á móti fasisma og miðaldahugsun, þá eru það frjálslyndar stjórnmálahreyfingar og höfundasambönd.“