Einar Bárðarson, almannatengill og lagahöfundur svo eitthvað sé nefnt, kallar eftir því að landsmenn sýni samstöðu á þessum erfiðu tímum sem nú eru uppi vegna COVID-19.
Hann hvetur fólk til að huga að smærri fyrirtækjum, verslunum og veitingastöðum til að mynda, sem finna fyrir samdrætti nú þegar faraldurinn er í algleymingi.
„Kæru vinir. Ef þið eigið uppáhaldsveitingastað. Þá er staðan þannig að hann er í vandræðum eins og nær allir slíkir. Langur samdráttur í ferðaþjónustunni. Svo koma erfiðir janúar og febrúar og loks þegar sér fram á betri tíð kemur C19,“ segir Einar í færslu á Facebook-síðu sinni.
Hann beinir þeim tilmælum til þeirra sem geta að halda áfram að stunda viðskipti við þessa staði.
„Ef þið hafið tök á pantið hjá þeim "take-away" mat og sækið hjá, flestir eru að bjóða allt frá 15 og 20% afslátt, jafnvel meira. Þá er líka hægt að kaupa gjafakort í gegnum síma sem þið getið sótt seinna. Með þessu leggið þið ykkar að mörkum að aðstoða eigendur að halda sér á floti og starfsfólkinu að halda vinnunni,“ segir hann.
Þó að samkomubann sé í gildi segir Einar að þetta sé hægt að gera án þess að bregðast skyldum sínum meðan bannið er í gildi.
„En þetta gæti bjargað staðnum og komið honum í gegnum þetta tímabil og séð til þess að hann sé enn til staðar þegar þessu líkur. Þetta gildir klárlega líka um aðra smá verslun hver svo sem hún er - STÖNDUM SAMAN - ENDILEGA DEILIÐ,“ segir hann að lokum.