Einar laus úr ein­angrun: „Geturðu látið Aron eða Elliða fá prófið þitt?“

Einar Örn Jóns­son, í­þrótta­frétta­maður RÚV sem er nú staddur í Búda­pest vegna Evrópu­mótsins í hand­bolta, er laus úr ein­angrun eftir að hafa smitast af Co­vid-19 veirunni. Frá þessu greinir Einar Örn í færslu á sam­fé­lags­miðlinum Twitter í morgun.

Niður­staða úr PCR-prófi Einars á föstu­deginum í síðustu viku reyndist já­kvæð en nú á þriðju­degi er hann laus úr prísundinni eftir að niður­stöður úr hrað­prófi reyndust nei­kvæðar.

„Bæng! Laus úr prísundinni!“ skrifar Einar á Twitter.

Tómas Þór Þórðars­son, í­þrótta­frétta­maður, skrifar undir hjá Einari og biður hann um að gefa leik­mönnum prófið.

„Þú ert æði en geturðu látið Aron eða Elliða frá prófið þitt?“ skrifar Tómas.

„Er að photos­hoppa, ekki trufla,“ skrifar Einar í lettu gríni.

Net­verjar fagna endur­komu Einars og segja margir að þetta sé góðs viti fyrir leikinn á eftir.