Það er ekki beinlínis komið að tómum kofanum í Ritstjóraspjalli Sigmundar Ernis í fréttaþættinum 21 á Hringbraut í kvöld þegar stútungskarlarnir Einar Karl Haraldsson og Ingvi Hrafn Jónsson rifa kjaftinn, holknir báðir tveir af fjölmiðlareynslu og pólitískum áhuga, sá fyrrnefndi fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins og Þjóðviljans sáluga, sá síðarnefndi fyrrverandi fréttastjóri Ríkissjónvarps og Stöðvar 2 og síðar sjónvarpsstjóri ÍNN. Og það er tekinn snúningur á forsetakosningunum hér heima, sem og vestra í Bandaríkjunum, fjallað um pólitíkina hér heima, stjórnarsamstarfið, klofna stjórnarandstöðu, málþóf Miðflokksins og hrifningu Davíðs Moggaritstjóra Oddssonar á Sigmundarflokknum þeim arna – og svo er talað um seinni tíma rétttrúnað þegar sígarettan er ekki einasta fjarlægð úr munni Bubba heldur látið að því liggja að fella þurfi sjálfan Ingólf Arnarson af stalli sínum af því hann hélt þræla, en líkneski af öllu tagi fara á haugana þessa dagana eftir morðið á George Floyd í Ameríku. Þátturinn byrjar 21:00 í kvöld.
Einar Karl og Ingvi Hrafn í Ritstjórunum í kvöld – og hvergi kjaftstopp
Fleiri fréttir
Nýjast