Óhætt er að segja að Einar Karl Haraldsson, formaður sóknarnefndar Hallgrímskirkju, fái á baukinn í færslu sem hann skrifaði á Facebook-síðu Hallgrímskirkju um helgina.
Mjög hefur gustað um sóknarnefnd kirkjunnar að undanförnu eftir að sóknarnefndin gerði starfslokasamning við Hörð Áskelsson sem hefur verið kantor og organisti í kirkjunni í nærri 40 ár. Hörður nýtur mikillar hylli en hann stjórnaði meðal annars Mótettukór Hallgrímskirkju.
Hafnaði heiðurssamningi
Margir furðuðu sig á brotthvarfi Harðar og gagnrýndu kirkjuna harðlega. Í þeim hópi var þjóðfræðingurinn Pétur Húni Björnsson sem byrjaði í Mótettukórnum fyrir um fimmtán árum. Fleiri stigu fram og gagnrýndu ákvörðunina en Einar Karl svaraði fyrir hana í umdeildri færslu sem birtist á Facebook-síðu Hallgrímskirkju á sunnudag.
Þar segir Einar að Hörður hafi sjálfur lagt fram ósk um hreinan starfslokasamning eftir að hafa hafnað „Heiðurssamningi Hallgrímskirkju“. Þá hafi Hörður leikið mjög takmarkað á orgel í Hallgrímskirkju síðastliðin þrjú ár. Hann hafi greint frá því sjálfur á fundi með formanni sóknarnefndar í janúar síðastliðnum að hann hefði ekki áform um að sinna störfum sem organisti kirkjunnar frá 1. júní næstkomandi. Heilsa hans leyfði ekki orgelleik á því stigi sem krefjast yrði af organista í Hallgrímskirkju.
Galin færsla
Athyglisvert er að skoða athugasemdirnar undir færslu Einars Karls en óhætt er að segja að hann fái að heyra það frá fólki. „Þetta er algjörlega galin færsla frá kirkjunni. Sést hvað bilunin þarna innan dyra er stórfengleg,“ segir í einni athugasemd.
„Skömm að þessu. Sóknarnefnd á tafarlaust að víkja og kirkjumálaráðherra á að skipa óháðan aðila til að semja við Hörð Áskelsson á HANS forsendum. Hann og Inga Rós hafa staðið fyrir listviðburðum á heimsmælikvarða í Hallgrímskirkju og með ötulu og fórnfúsu starfi skapað kirkjunni sess sem eins helsta aðdráttarafls þjóðarinnar. Tekjur safnaðarins af ferðamennsku eru ómældar og tímabundnar þrengingar vegna covid 19 á einn ríkasti söfnuður landsins að geta staðist án þess að það bitni á okkar hæfasta kirkjulistafólki,“ segir í annarri. Þá segir einn:
„Þetta brotthvarf Harðar Áskelssonar kemur fleirum en safnaðarstjórn við. Er það ekki deginum ljósara að nefndin öll segi af sér svo að hægt sé að forðast þennan óbætanlega skaða.“ Í þeirri fjórðu segir:
„Þessi færsla er ákaflega niðurlægjandi fyrir sóknarnefnd og ber hún vitni um skort á hugarró og smekkvísi. Hörður er einn albesti tónlistarmaður þjóðarinnar og hefur hann rutt brautina í íslenskri tónlist. Hans störf hafa stuðlað að því að koma tónlistarflutningi hér á landi á hærra tilverustig. Hann á betra skilið.“
„Hér eru ljótir og óréttlátir hlutir skrýddir fögrum búningi. Megið þið í Hallgrímskirkju sem að þessu standið hafa ævarandi skömm fyrir ykkar framkomu í garð Harðar og Ingu Rósar - og þar með okkar allra sem hafa tekið þátt og gefið til tónlistar- og kirkjustarfsins,“ segir í enn annarri athugasemd.
Eyþór Ingi Jónsson, organisti við Akureyrarkirkju, lýsir mikilli óánægju með málið. „Það er með ólíkindum að formaður sóknarnefndar skuli ræða heilsufar starfsmanns, sem rætt var á fundi formannsins og starfsmannsins, á opinberri Facebooksíðu Hallgrímskirkju. Ég lýsi því hér yfir að ég mun ekki koma fram sem organisti né kórstjóri á neinum viðburðum á vegum Hallgrímskirkju um óákveðinn tíma.“
Athugasemd við tölvubréf til Listvina Í tölvubréfi til Listvina 1. maí sl. segir Hörður Áskelsson (HÁ) kantor:...
Posted by Hallgrímskirkja on Sunnudagur, 2. maí 2021