Grunnt var á því góða á milli rithöfundarins Einars Kárasonar og Gunnars Smára Egilssonar um helgina. Ólína Þorvarðardóttir, fyrrverandi þingkona, var á meðal ræðumanna á Austurvelli um helgina þar sem útboðinu á hlut ríkisins í Íslandsbanka var mótmælt.
Ólína birti myndir á Facebook-síðu sinni af þeim mikla fjölda fólks sem lagði sína á Austurvöll.
Einar Kárason skrifaði athugasemd við færsluna þar sem hann sagði meðal annars:
„Sósíalistaflokkurinn skilur mjög vel morðárásir á fólk í Úkraínu. Maður er ekki með þeim á fundi.“
Ólína benti Einari á að margir hafi staðið að fundinum, meðal annars ungliðahreyfingar stjórnmálaflokkana og að blanda Úkraínustríðinu inn í málið væri ómálefnalegt og óskiljanlegt.
„Enginn ræðumanna eða skemmtikrafta eru úr Sósíalistaflokknum svo vitað sé, en vissulega er einn aðili þaðan í undirbúningsnefndinni. Það er bara hið besta mál enda er hann að gera mjög góða hluti þar,“ sagði Ólína.
Gunnar Smári blandaði sér í umræðuna og spurði hvaða máli það myndi skipta þó allir ræðumenn hefðu verið úr Sósíalistaflokknum.
„Eiga Sósíalistar að nú að þegja? Af því Einar Kárason er pólitískt ólæs? Og það eru miklu fleiri en einn sósíalisti sem stóð að undirbúningnum, í raun væri rétt að segja að þeir hafi borið hitann og þungan af undirbúningnum, þótt þeir séu ekki að flagga því eða troða sér að hljóðnemunum,“ sagði Gunnar Smári og bætti svo við í annarri athugasemd:
„Pólitískur áhugi Einars snýst um [að] endurreisa Jón Ásgeir Jóhannesson með helgramannasögum. Þegar hann fær borgað fyrir það.“
Þá virðist Einar hafa fengið nóg því hann sendi Gunnari Smári tóninn og rúmlega það.
„Gunnar Smári Egilsson En ekki má samt gleyma því að þú ert bæði huglaus og heimskur.“
Gunnar Smári kippti sér ekki mikið upp við kveðjuna og sagði einfaldlega: „Ævinlega kærar þakkir elskulegur.“ Því svaraði Einar að bragði: „Hvenær sem er kæri vin,“ og virðast þeir hafa skilið nokkuð sáttir.