Einar Kára hjólar í eigendur Hybrid bíla: „Hvers vegna eruð þið að kaupa þetta hel­víti?“

Rit­höfundurinn Einar Kára­son fer hörðum orðum um tvo vini sína sem hafa ákveðið að kaupa sér tengiltvinn bíla en hann vill meina það sé bara vegna á­kvörðunnar stjórn­valda að fella niður gjöld, skatta og tolla á slík ökutæki.

„Hef ný­lega hitt tvo gamla vini sem vegna starfa og á­huga­mála fara mikið um landið. Hér í borginni fara þeir um á litlum bílum en hafa jeppa fyrir þjóð­vegina. Báðir hafa ný­lega endur­nýjað jeppana, og þá fengið „hybrid“ (ten­gilt­vinn?) sem merkir að það er komið batterí upp á hálft tonn í öku­tækið, á­samt þungum raf­búnaði öðrum, en minni hefð­bundinni vél á móti,“ skrifar Einar á Face­book.

„Báðir segja þeir raf­magnið duga upp í Mos­fells­bæ, en þá taki hitt við, með meiri elds­neytis­eyðslu, vegna nýja þungans og einnig minni vélar sem þarf að djöflast í lágu gírunum,“ bætir Einar við áður en spyr spurningu sem svarar síðan sjálfur.

„Ég spyr: Hvers vegna eruð þið að kaupa þetta hel­víti? Jú, það er vegna þess að stjórn­völd, í nafni um­hverfis­verndar og grænna kosta, hafa fellt niður gjöld, skatta og tolla á nýja gagns­lausa draslinu.“