Einar Ingvi er vagnstjóri Strætó og er mjög ósáttur við borgina

Einar Ingvi Magnússon, vagnstjóri í Reykjavík og nágrenni, segir að mikil afturför hafi orðið undanfarna áratugi í almenningssamgöngum Reykjavíkurborgar hvað viðkemur aðstöðu fyrir farþega strætisvagna í borginni.

„Hún er hreinlega til háborinnar skammar,“ segir Einar í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag og sparar ekki stóru orðin.

„Ég man þá tíð þegar biðstöðvar voru starfræktar á Lækjartorgi, Hlemmi og í Mjódd. Þar inni var upphituð aðstaða fyrir farþega til að ylja sér fyrir veðri og vindum, biðsalur með bekkjum, aðgengi að salerni, sjoppa og miðasala. Þótt ýmislegt mætti betur gera til lagfæringar á leiðakerfi strætisvagnanna og lítið samráð haft við vagnstjóra í því sambandi er enn hörmulegra að þurfa að horfa upp á aðstöðuleysi farþega í Reykjavíkurborg,“ segir Einar í grein sinni.

Hann bendir á að þjónustubiðskýlum hafir verið lokað og þau tekin undir aðra starfsemi. Farþegar þurfi að gera sér að góðu að híma úti hvar sem skjól er að finna.

„Framkoma borgaryfirvalda við hinn almenna borgara sem nota þarf strætisvagnana er skammarleg og hefur aldrei verið jafn bagaleg í sögu almenningssamgangna í Reykjavík eins og staðan er í dag. Við vagnstjórar, sem viljum farþegum okkar vel, krefjumst betri aðstöðu fyrir viðskiptavini okkar.“

Einar segir að það séu vagnstjórarnir sjálfir sem heyra óánægjuraddir fólksins sem þeir mæta á hverjum degi. Það sé sárt að þurfa að tjá farþegum að það sé ekki í höndum þeirra að breyta einu né neinu.

„Við höfum horft nógu lengi upp á skammarlega framkomu borgaryfirvalda gagnvart farþegum. Opna þarf gömlu biðskýlin og þjónustumiðstöðvarnar á ný með tilheyrandi þjónustu og umhyggju gagnvart farþegum almenningsvagna Reykjavíkur. Farþegar hafa nógu lengi þurft að standa úti í kuldanum og eiga betra skilið af borgaryfirvöldum. Vagnstjórar hafa fengið nóg af vanrækslu borgarinnar í garð viðskiptavina sinna og krefjast úrbóta hið fyrsta.“