Einar hneykslaður: „Eitt hallærislegasta sem maður hefur lengi séð úr íslenskri pólitík“

„Þessi affera með orð Ágústs Ólafs um ríkisstjórn Bjarna Ben og móðganirnar og kröfur um afsökunarbeiðni, og að hann hafi orðið við þeim, er eitthvað það hallærislegasta sem maður hefur lengi séð úr íslenskri pólitík, og er þó af ýmsu að taka.“

Þetta segir Einar Kárason rithöfundur og varaþingmaður Samfylkingarinnar á Facebook-síðu sinni. Einar kemur þar samflokksmanni sínum, Ágústi Ólafi Ágústssyni þingmanni, til varnar eftir að sá síðarnefndi var sakaður um kvenfyrirlitningu vegna ummæla sem hann lét falla í útvarpsþættinum Sprengisandi í gær.

Í við­talinu sagði Ágúst Ólafur að ríkis­stjórnin væri ríkis­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála­ráð­herra, en ekki Katrínar Jakobs­dóttur for­sætis­ráð­herra. Líf Magneu­dóttir vakti fyrst at­hygli á um­mælunum á Twitter og sakaði þing­manninn um kven­fyrir­litningu. Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra tók undir með Líf og sagði: „Botnlaus kvenfyrirlitning. Og ekki í fyrsta sinn.“

Ágúst Ólafur baðst afsökunar á ummælum sínum í morgun. Sagði hann leitt hvernig hann setti orð sín fram. „Ég ætlaði mér ekki að gagnrýna eða draga í efa forystuhæfileika Katrínar sem ég ber mikla virðingu fyrir heldur var ætlunin að gagnrýna pólitík Sjálfstæðisflokksins, sem mér finnst ráða of miklu í áherslum þessarar ríkisstjórnar, sérstaklega í fjárlögum og fjármálaáætlun þar sem Sjálfstæðisflokkurinn fer með málaflokkinn,“ sagði Ágúst.

Einar Kárason er þeirrar skoðunar að of mikið hafi verið gert úr þessum orðum og óþarfi hafi verið fyrir Ágúst Ólaf að biðjast afsökunar.

„Hann var afar augljóslega að vísa til þess að þótt VG sitji við borðsendann í ríkisstjórninni, þá sé þar rekin pólitík Sjálfstæðisflokksins. Auðskiljanlegt, og eitthvað sem margir upplifa sterkt. Að formaður VG sé kona, og að allskonar fólk noti það til að sveipa sig skinhelgi með tilheyrandi útúrsnúningum um kvenfyrirlitningu er svo bjánalegt að best er að segja ekki meira um það,“ segir hann.

Margir taka undir með Einari. Þorsteinn Víglundsson, fyrrverandi þingmaður og ráðherra, er í þeim hópi. „Sammála því. Það var augljóst hvað Ágúst átti við, hversu vel sem það var svo orðað. Það þurfti ansi einbeittan vilja til að túlka það sem hreinræktaða kvenfyrirlitningu af hans hálfu,“ segir hann.

Álfheiður Ingadóttir, fyrrverandi þingmaður VG og fyrrverandi ráðherra, er ekki sömu skoðunar og Einar og Þorsteinn.

„Það er eitt að gagnrýna stefnu og málefnastöðu ríkisstjórnar, flokka og ráðherra. Það er hins vegar ömurlegt þegar menn geta ekki dulið kvenfyrirlitningu sína. Hún bara skein svo skært í gegn hjá Ágústi Ólafi að það duldist engum nema innvígðum í Samfó. Hann hefur reyndar beðist afsökunar Einar Kárason svo það er óþarft hjá þér að vera að verja orð hans.“