Einar Kárason, rithöfundur fyrrverandi varaþingmaður, er allt annað en sáttur við Útvarp Sögu. Eins og hjá öðrum fjölmiðlum landsins hafa málefni Úkraínu verið í brennidepli hjá útvarpsstöðinni en þó með öðrum hætti en annars staðar.
Einar segist muna að Útvarp Saga hafi verið kærkomið svar við „meiri mússík, minna mas“ sem var stefna útvarpsstöðva áður en Útvarp Saga var sett á laggirnar.
„Saga var með umræðuþætti, fræðsluspjall um bíla, landafræði, sagnfræði, ofl. – bara frábær, og ekki gleymast rabbþættir Sig. G. Tóm og Guðmundar Ólafs: kongeligt. Nú prófa ég stundum að kveikja á Sögu, en lendi sífellt á upprifnum og einhuga samræðum útvarpsstjóra við menn sem skilja, telja réttlætanleg og sanngjörn morð og dráp á saklausum almenningi Úkraínu; nauðganir og fjöldaaftökur og annan verri hrylling,“ segir Einar í færslu á Facebook-síðu sinni og spyr svo:
„Hvernig fór þessi ágæta hugmynd svona til helvítis? Og hver borgar fyrir viðbjóðinn?“