Einar Gautur ó­sáttur: „Þetta fólk verður að fara frá“ – Vonar að þau fari í mál við hann

„Barna­verndar­nefnd Reykja­víkur verður að segja af sér,“ segir hæsta­réttar­lög­maðurinn Einar Gautur Stein­gríms­son á Face­book-síðu sinni.

Einar Gautur deildi í gær frétt Vísis um að starfs­menn Barna­verndar Reykja­víkur og Barna­verndar­nefndar Reykja­víkur hafi verið kærðir til lög­reglu fyrir brot á hegningar­lögum.

Eru þeir sagðir hafa í­trekað haldið fram ó­sannindum og rangindum í skýrslum og byggt á­kvarðanir sínar á um­ræddum gögnum. Það er Sara Páls­dóttir sem lagði kæruna fram vegna máls skjól­stæðings hennar, konu sem var í fíkni­efna­neyslu en hefur tekið sig á.

„Það var allt í einu farið að nota rangar stað­hæfingar og ó­sannar skýrslur til að vista börn um­bjóðanda míns utan heimilis,“ sagði Sara en mála­vextir eru raktir ítar­lega í frétt Vísis.

Þetta til­tekna mál virðist ekki vera eins­dæmi, en Einar Gautur er reynslu­mikill lög­fræðingur sem hefur verið hæsta­réttar­lög­maður frá árinu 2000. Sagði Sara ein­mitt að eftir að hafa átt sam­töl við aðra lög­menn gruni hana að málið sé ekki eins­dæmi.

Í færslu sinni í dag sagði Einar að Barna­verndar­nefnd Reykja­víkur þyrfti að segja af sér. Þegar hann var spurður nánar út í á­stæður þess, sagðist hann hafa séð því­líka lög­leysu, vald­níðslu og lygar tíðkast þar.

„Þetta fólk verður að fara frá. Mér varð í al­vöru ó­mótt þegar ég sá hvernig menn höguðu sér. Það á að taka á þessu núna en ekki eftir 30 ár eins og hefur tíðkast. Vonandi fara þeir í meið­yrða­mál við mig svo hægt sé að rétta um full­yrðingar mínar. Hef enga trú á því að þeir leggi í þá veg­ferð, því miður.“