Einar Þorsteinsson, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík, boðaði til blaðamannafundar í Grósku í dag ásamt oddvitum Samfylkingar, Pírata og Viðreisnar.
Framsóknarflokkurinn tilkynnti í dag formlegar viðræður um myndun meirihluta í borgarstjórn með „bandalagsflokkunum“
Samkvæmtbeinni lýsingu mbl.is fékk Framsókn fullt umboð til að ganga til viðræðna frá grasrótinni í gær.
Dóra Björt Guðjónsdóttir oddviti Pírata hefur fulla trú á að viðræðurnar gangi vel og er spennt fyrir næstu dögum.
Þórdís Lóa í Viðreisn er sátt og ánægð með að viðræðurnar séu komnar af stað.
Dagur B. Eggertsson, sitjandi borgarstjóri, segir að þreifingarnar milli flokka hafi tekið langan tíman vegna þess að pólitíska landslagið er flókið um þessar mundir.
Hann er engu að síður mjög ánægður og bjartsýnn og hlakkar til þess að verja næstu dögum með oddvitum flokkanna.
Hann var spurður um hvort það komi til að greina að hann verði ekki áfram borgarstjóra en hann svaraði því ekki. Hann sagði málefnin verða rædd fyrst svo verkaskiptingin.