Einar: Færsla Helgu Völu til þess fallin að særa fram tröll – „Prófaðu að lesa kommentin“

„Ég þoli vel um­ræðu um störf mín og kveinka mér ekki. Ég tek þó tak­markaðan þátt í þessari um­ræðu en reyni að verja eðli­lega frétta­mennsku,“ segir Einar Þor­steins­son, frétta­maður í Kast­ljósi, sem gagn­rýndur var fyrir við­tal við Má Kristjáns­son, yfir­lækni smit­sjúk­dóma­deildar Land­spítalans, í gær­kvöldi.

Hring­braut greindi í morgun frá orða­skiptum Einars og Helgu Völu Helga­dóttur, þing­konu Sam­fylkingar, eftir þátt Kast­ljóss í gær­kvöldi. Það er skemmst frá því að segja að þau orða­skipti hafa haldið á­fram í morgun eftir að Helga Vala skrifaði aðra færslu um málið.

Helga Vala benti á að hún hefði eitt sinn starfað í fjöl­miðlum og þá fengið yfir sig gusur, stundum rétt­mætar en stundum ó­mál­efna­legar. Hún segist þó verða hugsi þegar gagn­rýni á fram­göngu fjöl­miðla­fólks í ein­staka við­tali sé kölluð „af­taka“. Engum sé greiði gerður að slá slíkri skjald­borg um fjöl­miðla­fólk, hvorki fjöl­miðla­fólki né lýð­ræðinu.

„Orða­skiptin hafa vægast sagt verið hressandi en auð­vitað leynist inn á milli fólk sem fer yfir strikið. Það þekkjum við sem störfum í stjórn­málum líka. Einar Þor­steins­son er reyndur fjöl­miðla­maður og ég þykist vita að hann þolir um­ræðu um störf sín og hafi jafn­vel gaman af,“ sagði Helga Vala í morgun.

Einar sagðist þola vel um­ræðu um störf sín og mark­mið hans í þeirri um­ræðu væri að verja eðli­lega frétta­mennsku. „Prófaðu að lesa kommentin við þessa “mál­efna­legu gagn­rýni” og veltu fyrir þér hvort um­ræðan er upp­byggi­leg og skemmti­leg af­lestrar. Á­byrgðin liggur víða,“ sagði hann og bætti við að færsla Helgu Völu í gær­kvöldi, þar sem hún sagðist „bæði orð­laus og rasandi“ hefði verið ein­föld upp­hrópun og hneykslun sem var ein­vörðungu fallin til að særa fram tröll.

„Sem hann gerði. Status sem fælir fjöl­miðla­menn frá því að stunda gagn­rýna frétta­mennsku til að lenda ekki í hakka­vélinni. En ég er með þykkan skráp. Kom mér bara á ó­vart að sjá þetta frá fyrr­verandi fjöl­miðla­konu. Það kemur lík­lega hratt móða á frétta­gler­augun þegar maður situr á Al­þingi.“