Einar boðar góð tíðindi: Vorið er rétt handan við hornið

„Þetta er skýrt vorteikn og markar upphaf leysingartíðar næstu vikna,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur í færslu á Facebook-síðu Bliku.

Einar segir að eftir tíu daga fremur vetrarlegan kafla sé nú spáð breytingum.

„Lengi vel stóð glöggt með lægð sem spáð er á fimmtudag. Lengi vel var hún í spánum þeirrar gerðar að vera að mestu sprottin upp úr svölu lofti. En í gær og í dag má sjá í reiknuðum spám lítil háloftabylgja djúpt suður af hvarfi nær að rísa og tengjast lægðarmynduninni.  Við það breytist allt. Tunga af mildu og röku lofti á það greiða leið í áttina til okkar.“

Einar segir að á almennu veðurmáli kallist þetta suðaustan slagviðri með rigningu og hlýnandi veðri – sum sé engin bongóblíða en engu að síður skýr merki um ákveðnar breytingar. Einar segir að leysingin nái upp í þúsund metra hæð og hiti sunnanlands verði um 5 til 7 gráður en fer í 10 gráður norðan heiða. Það rignir um tíma um allt land en mest syðra.

„Þó aðeins slái í bakseglin á föstudag og laugardag og snjóað gæti í fjöll, má með rétt segja að lægðin sé gegnumbrot. Það fyrsta í raun frá 22. til 24. mars.  Í framhaldinu er reiknað með háþrýstisvæði við Bretlandseyjar.  Því fylgir SV-átt í háloftunum (í stað NV-áttar) og loft af suðlægum uppruna berst hingað í bland við svalara loft úr vestri. Þetta er skýrt vorteikn og markar upphaf leysingartíðar næstu vikna.“ 

SKÝRT VORTEIKN ..og markar upphaf leysingartíðar næstu vikna. Frekari umfjöllun á Bliku.

Posted by Blika on Mánudagur, 12. apríl 2021