Einar birtir nýja langtímaspá: Verður veðrið svona fram í desember? – „Sérstakt og jafnvel ótrúverðugt“

Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Bliku, hefur birt niðurstöður nýrrar langtímaspár sem gildir fram í desember. Eins og ávallt þegar um spár svo langt fram í tímann er að ræða ber að taka þeim með fyrirvara enda ýmsar breytur sem liggja til grundvallar.

Einar fjallar um málið á vef sínum, Blika.is, og er langtímaspáin byggð á átta reiknisetrum á Kóperníkusarstofnuninni; fimm eru með svipuðu sniði en þrjár nokkuð aðra niðurstöðu.

„Ef við höldum okkur við þá Evrópsku (ECMWF) en hún er ein þeirra 5, að þá gefur hún til kynna nokkuð afgerandi spá og háloftafrávik sem segja verður að komi nokkuð á óvart. Einar segir að í spánni sjást afgerandi hæðarfrávik í háloftunum á stóru svæði, allt frá Nýfundnalandi, um Grænland, Ísland og austur fyrir Skandinavíu.

„Dálítið sérstakt og jafnvel ótrúverðugt ef út í það er farið. Gangur lægða austur yfir Atlantshaf verður samkvæmt þessu minni en venjulega og jafnvel spretta upp tíðar fyrirstöðuhæðir.  Á svipuðum slóðum kemur einnig fram greinilegt frávik loftþrýstings.“

Einar segir að ekki sé gott að segja hvers kyns veður fylgir slíkri hringrás hér á landi.

„Getur orðið kaflaskipt, vikur sem einkennast af hlýindum og S eða SV-átt en á milli hálfgerð kuldaköst með N-átt. Kannski ekki ósvipað og í desember 1995,“ segir Einar og bætir við að þá hafi frávikin í háloftunum verið nokkuð áþekk og spáin sýnir nú.

„Minnir að þennan vetur (eftir snjóflóðin mannskæðu á Flateyri seint í  október) að þá hafi tíð haldist svo góð frá á árið 1996 að varla þurfti að hreyfa snjóruðningstæki á Vestfjörðum!“

Spá Einars má lesa í heild sinni á vef Bliku og óhætt að segja að um forvitnilega lesningu sé að ræða.