Einar: „Hér uppí Heið­mörk mætti ég þessu ó­geði“

„Ég skora á sveitar­fé­lög landsins að hætta að bjóða upp á þetta fals öryggi,“ segir Einar Bárðar­son, al­manna­tengill og þúsund­þjala­smiður, á Face­book-síðu sinni.

Einar birti mynd af rusla­tunni sem varð á vegi hans í Heið­mörk – úti­vistar­para­dís höfuð­borgar­búa – í gær­morgun en ó­hætt er að segja að ó­fögur sjón hafi blasað við honum. Þar hafði botninn dottið úr grænni rusla­tunnu með þeim af­leiðingum að rusl var á víð og dreif um þetta fal­lega svæði. Einar hvetur sveitar­fé­lög landsins til að hætta að nota um­ræddar tunnur.

„Er þetta ekki komið fínt af þessum grænu gagns­lausu tunnum. Hér upp í Heið­mörk mætti ég þessu ó­geði í morgun. Hér eru engir ung­lingar að sparka í þetta þannig að hér fellur kenningin um að okkar góða unga fólk beri ein­hverja á­byrgð á subbu­skapnum af þessu. Ég týndi þetta vitan­lega upp en það hættu­legasta sem þarna var sást útum allt í náttúrunni, það var plastið. Sem ég þó reyndi að ná, alla­vega því sem ég sá.“

Einar segir að hann hafi týnt poka sem inni­héldu hunda­skít, sígarettur, ára­móta­sprengjur og alls­konar annað dót sem aðrir höfðu væntan­lega lagt á sig til að týna upp til að halda um­hverfinu fínu. „Þannig hafa nú tveir aðilar hirt upp þetta rusl með góðum huga til að hlífa náttúrunni og öðrum.“

Einar hvetur sveitar­fé­lög landsins til að skipta um­ræddum tunnum út fyrir rusla­tunnur sem gera það sem til þeirra er ætlast.

„Þetta er drasl sem er ó­nýtt og ef botninn dettur ekki úr þessu þá týnir mávurinn ruslið upp úr tunnunni og dreifir um allt. Lifum í á­byrgð en ekki í rusli!“

Myndirnar sem Einar birtir má sjá í færslunni hér að neðan. Annars vegar má sjá aðkomuna eins og hún blasti við Einari og svo eftir að hann tók til hendinni.

Er þetta ekki komið fínt af þessum grænu gagnslausu tunnum. Hér uppí Heiðmörk mætti ég þessu ógeði í morgun. Hér eru...

Posted by Einar Bardarson on Sunnudagur, 21. júní 2020