Einar Bárðar vill tæpar 70 milljónir fyrir þriggja ára gamlan bíl

Einar Bárðarson, almannatengill og þúsundþjalasmiður, sló á létta strengi á Facebook-síðu sinni í gær.

Eins og alþjóð veit er verkfall yfirvofandi hjá olíuflutningabílstjórum og hafa landsmenn – að minnsta kosti þeir sem aka um á bílum sem ganga fyrir jarðefnaeldsneyti – hamstrað eldsneyti. Ef verkfall dregst á langinn er ljóst að ekkert eldsneyti verður að fá og þá gætu góð ráð reynst dýr þegar á að koma sér á milli staða.

En þá getur verið gott að vera á rafmagnsbíl eins og Einar bendir á:

„KIA SOUL 2020. Rafmagnsbíll til sölu. Verðhugmynd 69.9 milljónir. PM.“

Færsla Einars kætti suma og tóku sumir þátt í gríninu. „Er með 5000lítra af bensíni hérna í stofunni sem ég þarf að losna við 900kall líterinn og málið er dautt,“ sagði til að mynda einn. „Þessi færsla vinnur internetið í dag,“ sagði annar.