„Við bíðum frétta á John Snorra vini mínum. John og Lína konan hans eru eitthvað magnaðasta fólk sem ég hef kynnst,“ skrifar Einar Bárðarson á Facebook í gær. Ekkert hefur spurst til Johns Snorra og tveggja annarra göngumanna á fjallinu K2 síðan snemma á föstudagsmorgun.
„Það skilja ekki allir þetta verkefni hans en hann er einn reyndasti fjallamaður heims. Honum datt þetta ekki í hug í fyrra vetur i einhverri miðaldrakrísu. Hann hefur farið á flesta toppa heimsins og suma oft. Hann hefur klifið fjallið að sumri og þá tók hann krók á leiðinni niður og smellti sér á K3 Eða K5 bara svona af því að það var þarna rétt fyrir framan hann,“ segir Einar og virðist ávarpa fólk sem hefur farið mikinn í kommentakerfinu um ákvörðun John Snorra að reyna við þetta erfiða verkefni.
„Hann var þarna efst uppi allann janúar í fyrra og kom niður án þess að ná á toppinn vegna þess að hann er skynsamur, þrátt fyrir allt. Hann er búinn að vera þarna uppi frá því í desember. Það er ekkert þarna að koma honum á óvart. Hann er búinn að vera í -20/40 gráðum vikum saman í allskonar veðri og sleppa við snjóhrun og ýmsar hættur.“
Einar segir þá að pakistanski herinn, sem nú leggur kapp á að finna John Snorra, fái greitt fyrir að vera í viðbragðsstöðu í tilfellum sem þessum og það frá fjallamönnunum.
„Á sama tíma og ég skrifa þetta er ég á bæn um það að vinur minn og félagar hans kom heilir niður og helst með toppinn á K2 í vasanum. Sendum honum góða strauma. Hann er líklega sá maður í heiminum sem er líklegastur til að koma niður eftir tveggja nátta stopp í turnsvítu,“ skrifar Einar. „Guð fylgi þér heim vinur.“
Við bíðum frétta á John Snorra vini mínum. John og Lína konan hans eru eitthvað magnaðasta fólk sem ég hef kynnst. Það...
Posted by Einar Bardarson on Saturday, 6 February 2021