Einar Bárðarson, umboðsmaður, lagahöfundur og almannatengill, segist vona að hann hafi ekki gert nágrannakonu sinni bilt við þegar hann ók fram hjá henni á dögunum.
Einar birti þakkarpóst í íbúahópi Garðbæinga á Facebook á dögunum og er óhætt að segja að hann hafi vakið mikla athygli. Birti hann mynd af grindverki skammt frá Sjálandsskóla en töluvert magn af plasti og öðru drasli hafði fokið upp að girðingunni með tilheyrandi sjónmengun.
„Ég keyri meðfram þessu grindverki 2 til 10 sinnum á dag. Hef horft á plastið sem sat fast í því um allt frá því að snjó tók upp og hugsað að þarna þyrfti ég að fara að plokka en ekki komist til þess. Í gær keyrði ég framhjá enn og aftur og þá var kona þarna á besta aldri að tína plastið upp úr jörðinni og utan af girðingunni og ég sé ekki betur en að girðingin sé laus við alla plastmengun núna,“ segir Einar sem er einn þekktasti plokkari landsins. Hann er þakklátur nágrannakonu sinni.
„Kæri nágranni sem þarna fórst um og tíndir þetta upp, fyrir hönd okkar sem búum hérna með þér þakka ég þér einlæglega fyrir framtakið. Ég vona að ég hafi ekki gert þér bilt við þar sem ég skrúfaði niður gluggann, vinkaði þér og reyndi að kalla til þín þakklætiskveðjur. Til ykkar allra hérna inni, látum okkur umhverfið varða. PS. þetta er við hliðina eða á móts við Sjálandsskóla ef einhver væri ekki að átta sig á staðsetningunni.“