Íslendingar eiga það til að vera fljótir að gagnrýna fyrirtæki ef þjónusta þeirra er þeim ekki að skapi. Sumir, að minnsta kosti, eiga það líka til að spara hrósið þegar kannski er ástæða til að gefa það.
Hinn þjóðþekkti Einar Bárðarson tilheyrir þó hvorugum hópnum ef marka má færslu sem hann skrifaði á Facebook-síðu sína í gær. Þar hrósaði hann starfsmanni Elko fyrir fyrsta flokks þjónustu sem hann og dóttir hans fengu.
„Þegar kemur að allskyns smávöru og heimilistækjum þá hef ég oft farið í ELKO. Ágætis starfsfólk, heilmikið vöruúrval og góð verð. Á föstudaginn fór ég þangað með dóttur minni sem hafði keypt sér heyrnatól hjá þeim í febrúar í fyrra og vöru einfaldlega ónýt,“ segir Einar en úr varð að þau fóru á þjónustuborðið þar sem starfsmaðurinn sló inn kennitölu. Án þess að blikka eða stöðva eitt augnablik skrifaði hann út innleggsnótu og rétti stelpunni.
„Hún hafði kviðið mikið fyrir því að fá ekki neitt og þurfa að ströggla við það að fá sinn hlut leiðréttan en þetta var í raun .. ef eitthvað var auðveldara en þegar við keyptum heyrnatólin. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem við fáum frábært viðmót með bilaða vöru. Ég er ekki á neinn hátt tengdur Elko og þessi færsla er ekkkkkkert samstarf. Bara einlægt föðurlegt þakklæti fyrir vinsamlega framkomu gagnvart viðskiptavinum.“