Einar Bárðar um mál Þórdísar: „Hún gerði mis­tök sem kostuðu okkur sem sam­fé­lag ekkert“

Einar Bárðar­son, laga­smiður og al­manna­tengill, segir að Þór­dís Kol­brún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir sé einn allra far­sælasti ráð­herra þessarar ríkis­stjórnar. Honum þykir býsna hart hafa verið gengið fram í máli hennar undan­farna daga.

Mikið hefur verið fjallað um vin­konu­hitting Þór­dísar á laugar­dag en á myndum sem dreift var um sam­fé­lags­miðla mátti sjá að tveggja metra reglan var þver­brotin. Þá óskaði frétta­stofa RÚV eftir því í gær að Þór­dís myndi af­henda af­rit af reikningum fyrir þjónustu í heilsu­lind Hilton Nor­di­ca, en Þór­dís varð ekki við þeirri beiðni. Vildi frétta­stofa fá af­ritið þar sem hluti hópsins hafði notið sér­stakra fríðinda.

Einari þykir illa vegið að Þór­dísi og er hún í hans huga öflugasti stjórn­mála­maður sinnar kyn­slóðar.

„Hún hefur leyst far­sæl­lega úr flóknum við­fangs­efnum síns ráðu­neytis og hélt vel á spöðunum í flóknum málum dóms­mála-ráðu­neytisins þegar hún fékk það ó­vænt upp í hendurnar á tíma­bili. Hún gerði mis­tök, sem kostuðu okkur sem sam­fé­lag ekkert. Hún hefur beðist af­sökunar á því,“ segir Einar í færslu á Face­book-síðu sinni.

„Mér finnst hér gengið hart að konu yfir máli sem varðar ekki al­manna­hags­muni. Við erum al­mennt ekki að kalla eftir kvittunum fyrir miðum á fót­bolta­leiki, bjór­glösum eða ham­borgurum hjá karl stjórn­mála­mönnum þó við sjáum myndir af þeim njóta þess á sam­fé­lags­miðlum. Á sama tíma erum við að glíma við sögu­lega efna­hags­lægð, at­vinnu­leysi sem við höfum ekki séð áður og ríkis­á­byrgð á stærsta fyrir­tækið í hennar mála­flokki.“