Áslaug Thelma Einarsdóttir hafði betur í máli sínu gegn sínu gegn Orkuveitu Reykjavíkur, fyrrverandi vinnuveitanda sínum. Henni var sagt upp í september árið 2018 eftir að hún hafði ítrekað kvartað undan framkomu framkvæmdastjóra fyrirtækisins, Bjarna Má Júlíussonar, sem var hennar næsti yfirmaður.
„Það var hann sem sagði mér upp og vildi helst fylgja mér beint út úr húsi,“ segir Áslaug Thelma í færslu sem hún birtir um málið á Facebook-síðu sinni í dag en þar fer hún yfir forsögu málsins og þakkar þeim sem hafa stutt hana í gegnum málið allt.
Einar Bárðarson, tónlistmógull með meiru og eiginmaður Áslaugar, fagnar sigri eiginkonunnar á Facebook og lætur ON/OR heyra það.
„Cirka 1370 dögum síðar er fallinn dómur í máli Áslaugar konunnar minnar gegn ON/OR. Uppsögn hennar var ólögmætt samkvæmt dómi Landsréttar sem kynntur var að okkur viðstöddum kl 14:00. Ógeðfelldri framkomu vinnuveitanda í garð starfsmanns er vandfundinn. Eigiði góða helgi,“ skrifar Einar.
Hægt er að lesa umfjöllun Fréttablaðsins um mál Áslaugarhér.