Einar Bárðar með glóðar­auga – rukkaður um 26 þúsund krónur

Einar Bárðar­son greinir frá því á Face­book að hann hafi þurft að fara til læknis að láta skera burt lítinn blett sem olli því að hann fékk stærðarinnar glóðar­auga.

„Einar! Nú ferð þú til læknis og lætur skera burt litla 3 milli­metra dökka blettinn undir hægra auganu á þér. Það verður ALLT ANNAÐ að sjá þig”. Var sagt við mig og ég hlýddi,“ skrifar Einar á Face­book.

„Það er bara alveg hár­rétt hahahahaha ég væri alveg til að fá litla sæta svarta blettinn minn bara aftur í staðinn fyrir þetta hahahahaha. Vonandi hjaðnar þetta nú fyrir sumarið 🙂svo rukkaði læknirinn mig bara gall­harður um 26.000 krónur. Hann má nú bara vera feginn að ég gaf honum ekki sitt eigið glóður­auga hahahaha. En það er gott að helgar­vinnan er út­varp en ekki sjón­varp ;góða helgi !!!“ bætir Einar við að lokum.