Einar Bárðar: Áslaug ekki enn verið beðin afsökunar – Fjögur ár liðin í dag

Einar Bárðarson, umboðsmaður, almannatengill og lagahöfundur, minnist þess á Facebook-síðu sinni að í dag eru liðin fjögur ár síðan hann ritaði Facebook-færslu um fyrirvaralausa uppsögn eiginkonu sinnar hjá Orkuveitunni.

"Orkuveitu-forstjóra-færslan" er fjögurra ára í dag. Færsla þar sem ég vakti athygli á fyrirvaralausri uppsögn konunnar minnar sem hafði kvartað undan vinnustaðamenningu og óviðeigandi hegðun yfirmanns síns. Málið hafði verið afgreitt þannig að konan mín var rekin. Mér þótti sú afgreiðsla merkileg og ekki í takt við tíðarandann, landslög og innanhússreglur OR.... Það eru semsagt fjögur ár í dag frá þeirri færslu,“ segir Einar.

Hann segir að á þessum árum hafi í raun ekki mikið gerst.

„Eina sem hefur gerst að ráði í málinu er að OR/ON fékk á sig nokkuð harðorðan dóm vegna uppsagnarinnar fyrir 3 mánuðum, tæplega fjórum árum eftir uppsögnina. OR/ON gert að greiða lögmannskostnað Áslaugar, auk þess miska- og skaðabætur sem EKKI hefur ennþá verið gert,“ segir hann.

Einar bætir við að á sama tíma og þessi harðorða dómur var kynntur á stjórnarfundi Orkuveitunnar um mánaðamótin júní/júlí hafi forstjóri Orkuveitunnar fengið rausnarlega launahækkun sem var gerð afturvirk um sex mánuði.

„Í dómnum umrædda sem féll í Landsdómi 16. júní sl. er sagt að uppsögn Áslaugar hafi verið ólögmæt og allar útskýringar á henni sem kynntar voru á blaðamannafundi OR/ON um það bil þremur mánuðum eftir uppsögnina stæðust ekki skoðun. Þar var Áslaug eiginlega sökuð um að vera aumingi. En samt mjög pent "frammistöðuvandi" var það kallað.

Hugsið ykkur .. það var haldin blaðamanna fundur til að leggja mannorð og líf fyrrverandi starfsmanns í rúst. Ég man ekki eftir öðru eins.“

Einar bætir því við að engin merki um frammistöðuvanda hafi verið að finna í gögnum vinnuveitandans.

„Það var bara að sjá í gögnum sem urðu til eftir að málið rataði i fjölmiðla. Almennt er ég hættur að ræða þetta, en maður lætur ekki svona afmæli framhjá sér fara. Ekkert hefur semsagt verið gert gagnvart Áslaugu, þrátt fyrir undan gengin dóm í málinu. Hún hefur ekki einu sinni verið beðin afsökunar! Talandi um frammistöðuvanda.“