Einar bað bankann um milljón króna lán - Svona svaraði bankinn honum

Einar Kárason, rithöfundur og fyrrverandi varaþingmaður, segir farir sínar ekki sléttar af samskiptum við viðskiptabanka sinn.

„Hef verið í viðskiptum við sama íslenska bankann í 40 ár, með sama reikning og sömu kennitölu. Bankinn hefur reyndar amk. skipt þrisvar um nafn og kennitölu á þessum tíma, en mín viðskipti hafa verið vandræðalaus; sæmileg velta en aldrei fimmeyringur í vanskilum, af lánum, kortum útgjaldareikn. osfrv. Nú þurfti að skipta um þak hér á húsinu, margra milljóna framkvæmd, og ég hringi í bankann og spyr hvort hann geti hjálpað mér með milljónkall í smátíma. Svarið var: Þú verður fyrst að fara í greiðslumat.“

Einar sagði frá þessu á Facebook-síðu sinni og ekki stóð á viðbrögðunum.

„Þú ert ekki í VIÐ skiptum við banka….þeir eru í ÉG skiptum við þig,“ sagði Valdimar Örn Flygenring leikari. Pálmi Gestsson leikari tók undir gagnrýni Einars og sagði: „Þarna er þeim rétt lýst.“ Ólafur Páll Gunnarsson útvarpsmaður sagði: „Þetta er ömurlegt og glatað - kerfið ofar öllu.“