Einar, 72 ára: Desemberuppbótin dugar ekki fyrir hangikjötinu um jólin

Einar Helgason, 72 ára fyrrverandi sendibílstjóri, segist í vikunni enn einu sinni hafa orðið vitni að því þegar stjórnmálamaður utan stjórnar skrifar hjartnæma grein um bág kjör aldraðra og öryrkja.

„Þetta voru einmitt orðin sem mér datt í hug þegar ég las grein Björns Leví Gunnarssonar í morgunblaðinu 15/12. Enn einu sinni tjáir stjórnmálamaður sig um þessi mál á þann hátt að það mætti halda að hann væri tárvotur við skriftirnar,“ segir Einar í grein sem hann skrifar á vef Vísis.

Einar tekur samt fram að hann hafi ekkert upp á Björn Leví að klaga og hafi raunar frekar góðan þokka á honum. Hann muni þó aldrei standa við það sem hann segir, frekar en aðrir stjórnmálamenn ef hann kemst í stjórn.

„Þar sem ég er orðin sjötíu og tveggja ára gamall og hef fylgst með stjórnmálum á Íslandi svo lengi sem ég man þá veit ég nákvæmlega hvernig kaupin ganga á eyrinni. Ég gæti meira að segja skrifað fyrir hann stjórnarsáttmála um þessi mál ef hann einhvern tímann kæmist það langt að komast í ríkisstjórn,“ segir hann og telur upp kunnugleg loforð um bætt kjör aldraðra og öryrkja.

Einar segir að kannski sé hann bara bitur karlfauskur sem er að komast að því, eftir að hafa borgað samviskusamlega í lífeyrissjóð alla sína starfsævi, að þessi framfærsla sem honum er ætlað að lifa á dugar ekki.

„Eða það er kannski hægt að orða það þannig að vegna skerðinga og skatta sem hver einasta persóna sem komin er á þing hefur lýst yfir á einhverjum tímapunkti með grátstafinn í kverkunum að sé óréttlátt dugar ekki til að lifa af,“ segir Einar og heldur áfram:

„Eitt lítið dæmi um þetta er einhver desemberuppbót sem átti að koma nú í byrjun desember. Sú upphæð var auðvitað skattlögð og skert duglega af hinu opinbera þannig að það sem eftir stóð var ekki nóg fyrir einni hangikjötsmáltíð um jólin. Mér er satt að segja forvitni á að vita hvort desemberuppbótin sem þingmennirnir fengu á sama tíma hafi verð skattlögð það mikið að þeir eigi ekki fyrir jólamatnum. En verði ykkur samt að góðu og gleðileg jól.“