Ein þota frá Bret­landi væntan­leg til Ís­lands á Þor­láks­messu

Kanada, Dan­mörk, Finn­land, Þýska­land, Frakk­land, Ítalía, Belgía, Holland, Ind­land, Ír­land og Spánn eru meðal þeirra þjóða sem lokað hafa á nær allar sam­göngur frá Bret­landi.

Þetta var gert eftir að bresk yfir­völd til­kynntu um að nýtt af­brigði kórónu­veirunnar hefði skotið þar upp kollinum. Margt bendir til þess að þetta af­brigði sé meira smitandi en önnur af­brigði þó það valdi ekki al­var­legri veikindum. Belgía og Holland riðu á vaðið í gær­morgun og síðan þá hafa fjöl­mörg ríki bæst í hópinn.

Ís­land er ekki meðal þeirra þjóða sem hafa lokað á sam­göngur frá Bret­landi, en sam­kvæmt vef Isavia er ein þota Icelandair væntan­leg til landsins frá London á Þor­láks­messu. Þota frá Easy Jet lenti svo á Kefla­víkur­flug­velli í morgun.

Túr­isti segir frá því að níu ferðir Icelandair til við­bótar séu væntan­legar á tíma­bilinu frá 26. desember til 10. janúar næst­komandi.

Skiptar skoðanir eru um þetta nýja af­brigði en ljóst er að fjöl­margar þjóðir ætla ekki að taka neina á­hættu. Kári Stefáns­son, for­stjóri Ís­lenskrar erfða­greiningar, sagði í fréttum RÚV að ef þetta af­brigði væri smit­næmara en önnur þá væri það mjög lítið. Boris John­son, for­sætis­ráð­herra Bret­lands, sagði um helgina að þetta nýja af­brigði væri 70% meira smitandi en önnur.

Þór­ólfur Guðna­son sótt­varna­læknir sagði í fréttum RÚV að ó­víst væri hvað Bretar hefðu fyrir sér um að af­brigðið væri meira smitandi.

„Það kann vel að vera en það er ekki komið fram á hverju það er byggt. Það kann vel að vera að þetta tengist hegðun fólks, að það sé að hópast saman og passar sig ekki. Það er lykillinn að dreifingu,“ sagði hann.