Ein stúlknanna sem ensku landsliðsmennirnir Phil Foden og Mason Greenwood buðu upp á hótelherbergi sín um helgina hefur nú tjáð sig um málið en hún segist ekki hafa verið meðvituð um það að leikmennirnir hafi verið í sóttkví.
Líkt og greint hefur verið frá í fjölmiðlum gerðust Foden og Greenwood sekir um brot á sóttvarnarreglum þar sem þeir máttu ekki hitta aðra aðila meðan þeir voru hér á landi fyrir leikinn gegn Íslandi um helgina, leikmenn enska landsliðsins máttu aðeins vera á hótelinu og á æfingum.
Greenwood og Fodden játuðu að hafa brotið á sóttvarnarreglum og munu báðir greiða 250 þúsund íslenskar krónur í sekt hvor um sig vegna málsins.
Sjá einnig: Leikmenn enska liðsins í veseni eftir leikinn gegn Íslandi – Buðu stúlkum upp á hótel
Upp komst um málið eftir að stúlkurnar birtu myndir og myndbönd af heimsókninni á Snapchat en 433.is greindi frá þessu. Stúlkurnar vildu ekki tjá sig um málið í samtali við miðilinn en sögðust vera miður sín yfir málinu.
Ein þeirra virðist þó hafa skipt um skoðun en Nadía Sif Líndal birtir á Instagram síðu sinni að hún vildi leiðrétta nokkur atriði er varða málið og ítrekaði að hún hafi ekki lekið neinu í fjölmiðla.
„Ég tók ekki þessar myndir og þessi myndbönd. Ég var ekki að tala við hann í símann, það var önnur stelpa,“ segir Nadía og vísar þar til myndbands sem er nú í umferð þar sem ein stelpa sést tala við leikmennina í gegnum síma.
„Þeir áttu þetta ekkert skilið, þeir eru frábærir strákar og mjög góðir fótboltamenn. Ég vildi ekki að þetta myndi gerast,“ segir Nadía og ítrekar að hún hafi ekki lekið neinu til fjölmiðla.