Tamara Ecclestone, ein ríkasta kona Bretlands, ber athafnamanninn Sverri Einarsson þungum sökum í færslu sem hún birti á Instagram-síðu sinni í dag.
Tamara er dóttir Bernie Ecclestone en hann er einna best þekktur fyrir að hafa verið eigandi Formúlu 1, vinsælustu akstursíþróttakeppni heims. Sverrir hefur ratað nokkuð oft í fréttir hér á landi vegna skrautlegrar viðskiptasögu sinnar en hann hefur meðal annars sýslað með gull og demanta og boðið upp á smálán.
Í færslu sinni á Instagram birtir Tamara stóra mynd af Sverri og hvetur fólk til að „fara varlega“ þegar hann er annars vegar.
Hún segir að góð vinkona hennar hafi leigt honum fasteignina sína en hann hafi ekki greitt leigu síðustu tíu mánuði. Á sama tímabili hafi hann birt myndir af sér af ferðalögum sínum um víða veröld.
Þá fullyrðir Tamara að hann hafi falsað skjöl í nafni vinkonu hennar og haft í grófum hótunum. Tamara segir að tilgangur færslunnar sé að vekja athygli á starfsháttum hans svo enginn annar þurfi að upplifa það sama og vinkona hennar. Fer hún vægast sagt ófögrum orðum um Sverri. Hún birtir svo tengil á Instagram-síðu hans.
Færsla Tamöru hefur væntanlega náð augum margra en hún er með tæplega 500 þúsund fylgjendur á Instagram. Tamara er sem fyrr segir í hópi ríkustu kvenna Bretlands en eignir hennar eru metnar á tæpa 38 milljarða króna.
Ekki hefur náðst í Sverri til að bera þessar ásakanir undir hann.