Ein frægustu skilti landsins horfin á braut

Ein frægustu skilti landsins, í Skeifunni við Mörkina, sem voru í eigu Viðars Guð­jóns­sonar eru horfin á braut. Þetta bendir hinn glöggi net­verji Sigurður Sigurðs­son á í Twitter færslu sinni.

„Altari Trumps og Reykja­víkur­bréfa horfið á braut. Kafla­skil í sögu þjóðar,“ skrifar Sigurður og birtir mynd af skiltunum, sem nú hafa verið upp­færð. Flestir muna ef­laust eftir skiltunum góðu, þar sem stóð meðal annars í há­stöfum: „TRUMP“ og einnig: „Lesið Reykja­víkur­bréf Moggans,“ auk „NEI ESB“ og „NEI SCHEN­GEN.“

Skiltin hafa staðið um ára­bil og fyrir löngu orðið að eins­konar kenni­leiti í borginni. Þau voru þó mis­vinsæl, enda pólitískur boð­skapur hér á ferðinni en skemmdar­verk voru unnin á skiltunum síðasta suma

Sagðist Viðar í sam­tali við Hring­braut ekkert vera spældur vegna málsins. „Ég er ekkert spældur. Þetta eru ungir menn sem finnst þetta vera spennandi, þetta segir meira um á­standið heima fyrir,“ sagði Viðar. Var þetta í þriðja skiptið sem skiltið er skemmt. „Ég kalla skiltið reiði­mælinn, alltaf þegar ein­hver há­vær um­ræða er um eitt­hvað eins og ESB eða Trump þá koma ein­hverjir og skemma það,“ sagði Viðar.

Hann í­trekaði við til­efnið að hann væri ekki reiður, þetta sé ekki í fyrsta skipti. „Húsið mitt hefur líka verið eggjað tvisvar, einu sinni þrjú um nótt, þá náðist bíl­númerið,“ segir Viðar. „Það má alveg skoða for­dómana gagn­vart því að fólk hafi skoðanir hérna á Ís­landi. Það má ekki vera stuðnings­maður Trump til dæmis.“

Sjá einnig: Skemmdir unnar á skilti Viðars Guðjohnsen: „Ég er ekkert spældur“