Eiginmaður Katrínar gefur henni bækur um slökun: „Ég hef lítið lært af þeim“

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur afhjúpað hvað hún gerir til að slaka á. Björn Ingi Hrafnsson, ritstjóri Viljans, spurði hana og birtir myndband af Katrínu ræða slökun á Facebook síðu sinni.

„Ég hef verið sökuð um það á mínu heimili að kunna ekki að slaka. Ég hef meira að segja fengið bækur í gjöf frá eiginmanninum um slökun. Ég hef lítið lært af þeim,“ segir Katrín.

Hún telur upp þrjú atriði:

„Í fyrsta lagi. Fara út, draga andann, sérstaklega ef maður kemst út í náttúruna. Það er ein besta slökun sem ég þekki. Það tæmir hugann og fyllir mann nýjum krafti.“

„Í öðru lagi. Að hitta fjölskylduna. Hitta börnin, manninn og auðvitað líka vini sína. Fátt er betra en að geta glaðst og hlegið jafnvel.“

„Að lokum, þá þreytist ég ekki á að mæla með því að fólk vinni í því að bæta svefninn.“