Jón Skaftason, eiginmaður Hildar Björnsdóttur, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, lætur netverja heyra það sem efuðust um að hún hefði skrifað grein sem birt var í Morgunblaðinu í gær.
„Sorglegt að sjá menn sem varla ráða við einföld innlegg í athugasemdakerfi á samfélagsmiðlum halda því fram að Hildur […] sé ekki fær um að skrifa það sem frá henni kemur sjálf,“ segir Jón í færslu á Facebook.
Hildur þykir með duglegri stjórnmálamönnum landsins þegar kemur að því að skrifa greinar í blöðin og því sætir það eflaust furðu hjá þeim sem þekkja til hennar að því sé haldið fram að hún sé með skuggapenna á sínum snærum.
Jón deilir skjáskotum af umræðum á netinu um grein eiginkonu sinnar og þar efast einhverjir um að Hildur hafi í raun og veru skrifað greinina. Í einni segir: „Að fortíð skal hyggja ef framtíð skal byggja. Þessi grein sannar að það hefur ekki verið í huga þegar hún var samin, hver svo sem það gerði.“
Svo segir í annarri athugasemd: „Já, það væri sannarlega áhugavert að vita hver samdi í rauninni þessa grein!“
Jón tekur af öll tvímæli í færslu sinni á Facebook en veltir fyrir sér tilganginum með þessari orðræðu.
„Ekki veit ég hvað þar býr að baki. Er það af því hún er kona, eða þarf maður að vera orðinn miðaldra til að mega tjá sig í rituðu máli? Ég get að minnsta kosti vottað að Hildur skrifar ekki bara hvert einasta orð sjálf, heldur leggur hún ómælda vinnu í allt sem frá henni kemur. Það skín í enda í gegn í hennar málflutningi. Rökföst og vel upplýst. Byggir mál sitt á staðreyndum og virðingu fyrir sjónarmiðum annarra. Ekki nema von að slíkt sé fálkunum framandi.“
Sorglegt að sjá menn sem varla ráða við einföld innlegg í athugasemdakerfi á samfélagsmiðlum halda því fram að Hildur...
Posted by Jón Skaftason on Föstudagur, 19. mars 2021