Þröstur Leó Gunnarsson, leikari og sjómaður, fagnaði sextugsafmæli sínu síðastliðinn föstudag. Hann var í viðtali við Mannlega þáttinn á Rás 1 þar sem hann sagði frá spaugilegu atviki sem átti sér stað fyrir um tuttugu árum síðan. Fjallað er um þetta á vef RÚV.
Þannig er mál með vexti að dag einn var hringt í eiginkonu Þrastar, Helgu Helgadóttur, þar sem spurt var út í afnotagjöldin á heimili þeirra. Svo kom spurning sem kom nokkuð flatt upp á hana: „Hver sér um dánarbúið fyrir Þröst Leó?“.
Þröstur stóð við hlið eiginkonu sinnar þegar spurningin var borin upp, kannski sem betur fer. Hún sá sér þó leik á bragði og spurði á móti hvort hún vildi ekki bara tala við líkið. Rétti hún Þresti símann sem kynnti sig. Segir Þröstur að konan hafi afsakað sig og sagt að um einhvern misskilning væri að ræða.
Þröstur rifjaði svo upp að nokkru áður hefði hann séð dánartilkynningu þar sem greint var frá andláti manns með svipað nafn og hann. „Konugreyið var alveg í rusli,“ segir Þröstur.
Í viðtalinu fer Þröstur um víðan völl og talar um leiklistina og sjómennskuna svo fátt eitt sé nefnt.