Eigin­kona Johns Snorra: „Lítil von um að John finnist á lífi“

„Við vitum að núna þegar myrkrið skellur á í fjallinu er lítil von um að John finnist á lífi. Hugur okkar er hjá John Snorra, Ali og J Pablo. Sajid er kominn til byggða og við erum þakk­lát fyrir að hann er öruggur,“ segir Lína Móey, eigin­kona John Snorra, í til­kynningu.

Í til­kynningunni er bent á að leit að John Snorra, Mu­hammad Ali Sadpara og Juan Pablo Mohr á K2, undir stjórn pakistanska hersins, hafir staðið yfir í þrjá daga án árangurs.

„Ljóst er að þegar myrkur skellur á í fjallinu, um 14:00 að ís­lenskum tíma, er vonin um að þeir finnist á lífi mjög lítil því að­stæður á fjallinu eru virki­lega erfiðar og kuldinn mikill.“

Sja­id Ali Sadpara, sonur Mu­hammad, sem var einnig hluti af hópnum sem ætlaði á tindinn, er nú kominn til byggða en hann sneri til baka á föstu­daginn vegna bilunar í súr­efniskút.

Í til­kynningunni segir að fjöl­skylda John Snorra hafi verið saman­komin á heimili hans til að fylgjast með að­gerðum og til að styðja hvert annað við þessar erfiðu að­stæður. Hefur fjöl­skyldan fengið mikinn stuðning frá ís­lenskum stjórn­völdum sem hafa gert allt sem í þeirra valdi stendur til að tryggja að leitin sé eins um­fangs­mikil og hún hefur verið síðustu sólar­hringa og komið á góðum sam­skiptum við stjórn­völd í Pakistan. Fjöl­skyldan er jafn­framt þakk­lát fyrir mikinn stuðning og hlý­hug frá fjöl­mörgum aðilum.

„Við þökkum öllum þeim sem hafa stutt við okkur, sent okkur hlýjar kveðjur og hvatningar­orð. Við erum þakk­lát ís­lenskum stjórn­völdum, borgara­þjónustu utan­ríkis­ráðu­neytisins, Ríkis­lög­reglu­stjóra, Land­helgis­gæslunni og Geim­vísinda­stofnun Ís­lands fyrir ó­metan­legan stuðning og fag­mennsku meðan á leitinni hefur staðið. Og einnig þökkum við pakistönskum stjórn­völdum og öllum þeim sem tóku þátt í leitinni á fjallinu og hafa gert allt sem hægt er til að finna John Snorra, Ali og Juan Pablo,“ segir Lína Móey.

„Þetta er erfiður tími okkur fjöl­skylduna og við óskum eftir því að fá and­rými til að takast á við þessa þung­bæru stöðu.”