Leitin að þeim John Snorra Sigurjónssyni, Muhammad Ali Sadpara og Juan Pablo Mohr á næsthæsta fjalli heims, K2, undir stjórn pakistanskra yfirvalda, hefur ekki borið árangur.
Lína Móey, eiginkona Johns Snorra, kveðst í tilkynningu sem barst fjölmiðlum í morgun vera mjög þakklát þeim sem tekið hafa þátt í leitinni að þremenningunum undanfarna daga. Pakistönsk yfirvöld hafa ákveðið að halda grunnbúðum opnum og mun leit halda áfram eftir því sem veður og aðstæður leyfa.
„Ég vil ítreka þakkir mínar til allra sem hafa tekið þátt í leitinni að þeim John Snorra, Ali og J Pablo. Leitin er mjög krefjandi og hefur verið stýrt af pakistönskum yfirvöldum og fagmennska borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins hefur verið ómetanleg. Þeir félagar eru enn týndir en vonin um kraftaverk lifir. Hjörtu okkar, ástvina þeirra, slá með þeim.“, segir hún í tilkynningunni.
„Það er búið að vera ótrúlegt að finna þann kraft sem hefur verið í leitinni, bæði af hálfu íslenskra, pakistanskra og síleskra yfirvalda. Ekki síður hefur sú umhyggja og sá stuðningur sem fjöldi fólks hefur sýnt okkur styrkt fjölskylduna á þessum erfiðu tímum. Hjartans þakkir til ykkar allra.“