Eig­andi Regus segir vinnu­viku Ís­lendinga í ruglinu: „Þurfum við föstu­daga?“

Tómas Ragnarz, eig­andi og fram­kvæmda­stjóri Regus á Ís­landi, vill lengja helgi Ís­lendinga um einn dag og hætta að vinna á föstu­dögum.

„Í ára­tugi höfum við skoðað leiðir til að auð­velda föstu­daga á skrif­stofunni; hvort sem það eru morgun­verðar­hlað­borð, bjór í há­deginu, hvers­dags­legri klæðnaður, styttri vinnu­dagur eða annað sprell. Því er kannski ekki nema von að sí­fellt fleiri séu farin að spyrja sig hvort yfir­leitt sé þörf á föstu­dögum,“ skrifar Tómas í grein á Vísir.is

„Fyrir­tæki og stofnanir eru í það minnsta farin að draga mjög úr vægi föstu­daga í vinnu­vikunni. Starfs­fólk hefur fengið aukið val um hvernig það vill haga starfi sínu í lok vinnu­vikunnar, mörg vinna meira heima á föstu­dögum og víða hefur fjögurra daga vinnu­vika verið við lýði án form­legrar á­kvörðunar um það. Fjöl­margir starfs­menn eru jafn­vel farnir að dreifa frí­dögunum sínum þannig að þeir geti tekið sér frí á hverjum einasta föstu­degi í þrjá mánuði. Föstu­dagar eru enda kjörnir frí­dagar því við elskum öll lengri helgi.“

„Heims­far­aldurinn flýtti dauða föstu­dagsins á skrif­stofunni eftir því sem fleiri tömdu sér blandað vinnu­fyrir­komu­lag. Til hvers að gera sér ferð í vinnuna þegar þú getur sinnt vinnunni þinni heima hjá þér, á næsta kaffi­húsi eða í fjar­vinnu­að­stöðu í næsta ná­grenni? Þróun síðustu tveggja ára hefur breytt skilningi okkar á því hvar og hvernig vinnan skuli fara fram og hvað skilar sér í mestum af­köstum. Því er auð­vitað spurt: „Þurfum við föstu­daga lengur?“ skrifar Tómas.

Hann segir að gögn Regus sýna að fyrir­tæki á heims­vísu eru horfa upp á þriggja daga vinnu­viku á skrif­stofunni.

„Í Bret­landi gefur út­tekt Regus til kynnna að að­sókn á skrif­stofuna er 23% meiri á þriðju­dögum, mið­viku­dögum og fimmtu­dögum en á mánu­dögum og föstu­dögum. Tals­maður Kast­le Sy­stems, sem þjónustar 2.600 byggingar víðs vegar um Banda­ríkin, sagði í sam­tali við Was­hington Post að að­eins 30% starfs­manna hafi farið í vinnu á föstu­dögum í júní, minnst allra virka daga.“

„En hvaða máli skiptir þetta? Þurfa vinnu­veit­endur að hafa á­hyggjur af því að skrif­borðin séu tóm áður en vinnu­vikunni lýkur form­lega – eða gæti þetta hrein­lega talist já­kvætt?“ skrifar Tómas.

„Stutta svarið við spurningunni er að auð­vitað eru skrif­borð fólks ekki tóm. Fólk situr bara við fleiri mis­munandi skrif­borð; kannski er það með eitt heima hjá sér, annað á bóka­safninu og það þriðja í sveigjan­legu vinnu­rými ná­lægt heimili sínu. Ef eitt­hvað er að marka rann­sóknir þá er þetta já­kvæð þróun. Aukinn sveigjan­leiki er lík­legri til að skila sér í af­kasta­meiri og á­nægðari starfs­mönnum.“

„Í skýrslu Cata­lyst kom þannig í ljós að starfs­menn með að­gang að fjar­vinnu­mögu­leikum eru 63% lík­legri til að segjast vera „ný­stár­legir“ og 75% lík­legri til að segjast taka „virkan þátt“ í starfi sínu. Þessar niður­stöður eiga sér stoð í rann­sóknum Regus, sem leitt hafa í ljós að næstum þriðjungur svar­enda (31%) sagðist telja að fram­leiðni sín hefði aukist með blendings­fyrir­komu­lagi. Föstu­dagar heima snúast því ekki um að fólk sé að skrópa í vinnuna, þvert á móti snúast þeir um að gera lífið auð­veldara og vinna betur,“ skrifar Tómas.

„Þetta er þó ekki ó­um­deilt. Til eru at­vinnu­rek­endur sem enn deila um það hvort föstu­dagur sé ó­missandi vinnu­dagur eða dagurinn til að gefa starfs­mönnum meira frelsi. Hinn lit­ríki Mike Ashley hjá Frasers Group hefur að eigin sögn bannað starfs­fólki að vinna heima hjá sér á föstu­dögum vegna þess að það bitni á af­köstum þess. Og það eru alltaf þessar sögu­sagnir af stjórn­endum sem skipu­leggja endur­tekna fundi klukkan 16:00 á föstu­dögum til að halda fólki í vinnunni að ó­þörfu.“

„Aftur á móti á­kváðu fyrir­tæki eins og Sonyað fara aðra leið. Á föstu­dögum á sumrin leyfðu þau „starfs­mönnum að verja hálfum vinnu­degi í að for­gangs­raða vel­ferð sinni sjálfir,“ skrifar Tómas.

„Sí­fellt fleiri fyrir­tæki hafa þó gengið enn lengra, eins og Fin­tech-sprota­fyrir­tækið Bolt, og af­skrifað föstu­dags­vinnuna með öllu og tekið upp fjögurra daga vinnu­viku. Stofnandi Bolt, Ryan Breslow, sagði að breytingin „sam­ræmdist breyttum vinnu­að­ferðum fólks“ og bætti við: „Vinnan mun fylla rýmið sem þú gefur henni. Ég er því að veðja á að við verðum mun dug­legri frá mánu­degi til fimmtu­dags.“

„Föstu­dagar eru vissu­lega af­slappaðri en aðrir dagar – í hvaða formi sem föstu­dagarnir eru – en það er aug­ljóst að það er ekki val­kostur fyrir öll fyrir­tæki eða stofnanir að gefa hann upp á bátinn. Það sem er hins vegar aug­ljóst er að starfs­menn elska sveigjan­leika og skýra virðingu fyrir heimilis­lífi sínu og fjöl­skyldu. Föstu­dagur án þess að vera fastur í um­ferðinni, föstu­dagur heima, í slökun og með mögu­leika á að brjóta daginn upp eins og þú vilt. Þetta er ein­föld gjöf sem vinnu­veit­endur geta boðið starfs­fólki sínu og sí­fellt fleiri eru farnir að gera.“

Tómas segir að rann­sóknir frá Global Work­space Analytics sýna að inn­leiðing blendings­vinnu og notkun sveigjan­legs skrif­stofu­rýmis þýðir að fyrir­tæki spara hefð­bundinn fastan kostnað eins og leigu, hita og auka mann­skap – sparnaður sem getur numið meira700 þúsund krónum á starfs­mann á mánuði. Sveigjan­leg kjör tæla einnig besta starfs­fólkið til fyrir­tækis þíns. 72% skrif­stofu­starfs­manna myndu kjósa lang­tíma­sveigjan­leika um­fram 10% launa­hækkun, sam­kvæmt töl­fræði Regus.

„Stað­reyndin er sú að fyrir meiri­hluta fólks sem nú þegar vinnur og hefur upp­lifað á­vinninginn af blendings­vinnu er erfitt að fara aftur í gamla farið. Til­hugsunin um að þurfa að sitja við til­tekið skrif­borð í sama hólfi í á­kveðinn fjölda daga og klukku­stunda hljómar forn­eskju­lega og þreytt núna þegar við hugsum um það. Og hversu af­kasta­miklir eru þessir föstu­dags­fundir þegar fólk er þegar með hugann við sam­veru­stundirnar um helgina með sínu allra besta fólki?“ skrifar Tómas að lokum.