Lokað verður hjólhýsabyggðinni við Laugarvatn og eigendum hjólhýsa á svæðinu verður gert að flytja þau í burtu fyrir lok árs. Grétar Sigurðsson, einn hjólhýsaeigandi, segir sveitarstjórnina vera að henda þeim í burtu með harðri hendi.
Fréttablaðið greinir frá þessu.
Grétar segir hjólhýsi vera á brunaútsölu vegna ákvörðunar sveitastjórnarinnar.
„Mágkona mín var snú í fyrradag að gefa hús sem hún keypti fyrir tvær milljónir fyrir ekki vso löngu síðan. Það var bara gefið,“ segir hann við Fréttablaðið og bætir við að hún sé ekki sú verst setta í þessu.
Fjölmörg hjólhýsi hafa selst á lágu verði að sögn Grétars. Hann segir frá vinkonu sinni sem keypti „breskan bragga“ fyrir þremur árum síðan á 4,8 milljónir en hún seldi hann á milljón.
„Þetta er neyðarástand hérna. Það sem er að gerast að þetta er þvílík eignarupptaka hjá fólki sem hefur alls ekki peninga til þess. Sparnaðurinn hefur bara farið hingað,“ segir Grétar.
„Það er bara verið að henda okkur í burtu með harðri hendi. Svo virðist vera engin handbær ástæða fyrir því,“ segir Grétar.